Viðtalstímar – Birgir Ármannsson og Valgerður Sigurðardóttir

Birgir Ármannsson, alþingismaður og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi bjóða upp á viðtalstíma, föstudaginn 3. maí, milli kl. 12:00 og 13:00.

Bóka þarf viðtalstíma fyrirfram með því að senda tölvupóst á netfangið skuli@xd.is eða með því að hafa samband við Sjálfstæðisflokkinn í síma 515-1700. Viðtalstímarnir fara fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Jafnframt er hægt að óska eftir því að eiga viðtal í gegnum síma. Hver viðtalstími getur verið allt að 15 mínútur að lengd.

Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru reglulega með opna viðtalstíma, sjá nánari dagskrá hér.

Kveðja, starfsfólk Sjálfstæðisflokksins.