Almar Guðmundsson bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðs Garðabæjar verður aðalræðumaður á opnum umræðufundi um húsnæðismálin í Garðabæ þriðjudaginn 22. janúar kl. 18:30-19:30 í húsnæði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ að Garðatorgi 7.
Á fundinum mun Almar fara yfir þetta brýna viðfangsefni og fjalla um húsnæðisáætlun Garðabæjar sem er í vinnslu, þar sem lagt er mat á þörf mismunandi hópa fyrir húsnæði og hvernig Garðabær hyggst mæta henni.
Boðið verður upp á pizzur og gos.
Allir hvattir til að mæta.
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ.