Jólagleði Varðar

Nú fer óðum að styttast í hátíðirnar og af því tilefni býður Vörður–fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík til jólagleði næsta fimmtudag, 13. desember, í Valhöll frá klukkan 18:00 til 20:00.

Eyþór L. Arnalds, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, verður heiðursgestur.

Bjarni Karlsson, sjálfstætt starfandi prestur, flytur jólahugvekju.

Ásdís Halla Bragadóttir les upp úr nýjustu bókinni sinni, Hornauga.

Léttar veitingar og fljótandi veigar í boði.

Allir velkomnir.

Facebook-viðburð jólagleðinnar má finna hér.