Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar til fundar í Reykjavík þriðjudaginn 16. október kl. 19:30. Fundurinn fer fram á atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, Skúlagötu 4.
Á fundinum mun ráðherra ræða nýtt frumvarp til laga um veiðigjald og stöðu sjávarútvegsins almennt.
Fundurinn er öllum opinn.