Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og oddviti D-listans í Garðabæ verður sérstakur gestur á laugardagsfundi í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, Garðatorgi 7, laugardaginn 4. maí kl. 11:00.
Gunnar fer yfir stöðu mála í bæjarmálunum og svarar fyrispurnum. Frábært tækifæri til að ræða málefni líðandi stundar og verkefnin framundan.
Boðið verður upp á kaffi og ilmandi bakkelsi.
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ