Viðtalstímar kjörinna fulltrúa – Birgir Ármannsson og Hildur Björnsdóttir

Vikulegir viðtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Birgir Ármansson, alþingismaður og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi bjóða upp á viðtalstíma á föstudaginn, 21. september, á milli 12:00 og 13:00. Hver viðtalstími er að hámarki 15 mínútur að lengd.

Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða á næstu vikum með opna viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Upplýsingar um hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.

Bóka verður tíma fyrirfram í s. 515-1700 eða með tölvupósti á skuli@xd.is .

Kveðja,

Sjálfstæðisflokkurinn