'}}
Hildur Björnsdóttir er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar öll atkvæði hafa verið talin í prófkjöri flokksins í dag. Hildur hlaut 2.603 atkvæði í 1. sætið.

Í öðru sæti er Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir með 2.257 atkvæði í 1. - 2. sæti. Í þriðja sæti er Kjartan Magnússon með 1.815 atkvæði í 1. - 3. sæti. Í fjórða sæti er Marta Guðjónsdóttir með 1.794 atkvæði í 1. - 4. sæti. í fimmta sæti er Björn Gíslason með 1.555 atkvæði í 1. - 5. sæti. Í sjötta sæti er Friðjón R. Friðjónsson með 1.688 atkvæði í 1. - 6. sæti. Í sjöunda sæti er Helgi Áss Grétarsson með 1.955 atkvæði í 1. - 7. sæti. Í áttunda sæti er Sandra Hlíf Ocares með 2.184 atkvæði í 1. - 8. sæti. Í níunda sæti er Jórunn Pála Jónasdóttir með 2.396 atkvæði í 1. - 9. sæti.

Alls kusu 5.545 í prófkjörinu. Gild atkvæði eru 5.292 atkvæði. Auð og ógild atkvæði eru 253.

Röð ellefu efstu manna í prófkjörinu er eftirfarandi:

  1. sæti Hildur Björnsdóttir með 2.603 atkvæði
  2. sæti Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir með 2.257 atkvæði í 1. – 2. sæti
  3. sæti Kjartan Magnússon með 1.815 atkvæði í 1. – 3. sæti
  4. sæti Marta Guðjónsdóttir með 1.794 atkvæði í 1. – 4. sæti
  5. sæti Björn Gíslason með 1.555 atkvæði í 1. – 5. sæti
  6. sæti Friðjón R. Friðjónsson með 1.688 atkvæði í 1. – 6. sæti
  7. sæti Helgi Áss Grétarsson með 1.955 atkvæði í 1. – 7. sæti
  8. sæti Sandra Hlíf Ocares með 2.184 atkvæði í 1. – 8. sæti
  9. sæti Jórunn Pála Jónasdóttir með 2.396 atkvæði í 1. – 9. sæti
  10. sæti Birna Hafstein með 2.319 atkvæði í 1. – 9. sæti
  11. sæti Valgerður Sigurðardóttir með 2.231 atkvæði í 1. – 9. sæti

Nánari sundurliðun atkvæða má sjá hér.