Boðað er til fundar í flokksráði Sjálfstæðisflokksins á morgun laugardaginn 27. nóvember nk. kl. 15:00.
Hægt er að kanna aðild að flokksráði á Mínum síðum (https://xd.is/minar-sidur/) og er fólk hvatt til að uppfæra upplýsingar s.s. netföng og símanúmer þar.
Á dagskrá fundarins er að taka afstöðu til stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
Fundurinn fer fram víða um land - fundarstaðir:
- Valhöll, Háaleitisbraut 1
- Kópavogur, félagsheimili sjálfstæðismanna í Hlíðasmára 19
- Garðabær, félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar, Garðatorgi 7
- Hafnarfjörður, félagsheimili sjálfstæðismanna á Norðurbakka
- Seltjarnarnes, félagsheimili sjálfstæðismanna, Austurströnd 3, Seltjarnarnesi
- Hvanneyri, Hvanneyrargötu 3
- Ísafjörður, Sjallanum, Aðalstræti 20
- Sauðárkrókur, Sæmundargötu 7
- Akureyri í Kaupangi
- Egilsstaðir, félagsaðstöðu Sjálfstæðisflokksins, Miðvangi 5-7
- Eskifjörður, Valhöll
- Höfn, Sjálfstæðishúsinu Kirkjubraut 3
- Hella, safnaðarheimilinu við Dynskála
- Vestmannaeyjar, Ásgarði félagsheimili sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum
- Selfoss, Sjálfstæðishúsið, Austurvegi 6 á þriðju hæð.
- Hveragerði, Sjálfstæðishúsinu í Hveragerði við Mánamörk
- Grindavík, Sjálfstæðishúsinu Víkurbraut 25
- Reykjanesbær, Sjálfstæðishúsinu í Reykjanesbæ
Flokksráðsfulltrúum er heimilt að sækja fundinn á hverjum ofangreindra staða þó með þeim takmörkunum að hámarksfjöldi á hverjum stað er 50 manns.