Skattafrádráttur vegna styrkja til almannaheillafélaga
'}}

„Það er frábært að sjá þetta mikilvæga mál koma til framkvæmda. Ég bind vonir við að hvatar fyrir almenning til að láta gott af sér leiða án milligöngu hins opinbera muni styrkja stöðu íslenskra almannaheillafélaga. Með breytingunum sendum við skýr skilaboð til þeirra þúsunda sjálfboðaliða sem starfa við almannaheillastarfsemi um allt land um að störf þeirra séu mikils metin og skipti okkur öll máli,“ segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra um ný lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi sem tóku gildi í þessu mánuði.

Lögin fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi. Auk þess er kveðið á um tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna slíkra framlaga og fer það úr 0,75% í 1,5%.

Við þetta bætist að nýleg frádráttarheimild atvinnurekenda vegna framlaga til kolefnisjöfnunar tvöfaldast, úr 0,75% í 1,5%. Alls geta atvinnurekendur því fengið frádrátt frá skattskyldum tekjum sem nemur 3% á ári vegna framlaga sinna.

Markmið breytinganna er að hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að styðja við almannaheillastarfsemi milliliðalaust, auk þess að styrkja stöðu lögaðila sem starfa til almannaheilla.

Í frétt hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu segir að skv. lögunum beri þeim sem styrkja almannaheillastarfsemi með þessum hætti að fá skriflega staðfestingu frá móttakanda styrksins en sá sem tekur við styrknum sendir Skattinum í kjölfarið nauðsynlegar upplýsingar sem veðra í framhaldinu forskráðar á skattframtal einstaklinga vegna næstliðins tekjuárs.

Með samþykkt laganna voru jafnframt samþykktar ýmsar undanþágur frá greiðslu skatta fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla. Þannig verða þeir undanþegnir greiðslu tekjuskatts og staðgreiðslu skatts af fjármagnstekjum, auk undanþágu frá greiðslu virðisaukaskatts með nánar tilgreindum skilyrðum.

Sjá nánar í frétt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins hér.