Skattalækkanir sem nýtast öllum
'}}

Birgir Ármannsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins:

Í kosningabaráttunni heyrast háværar raddir af vinstri vængnum um að hér á landi ríki gríðarlegur ójöfnuður og nauðsynlegt sé að bregðast við með róttækum aðgerðum, ekki síst í skattamálum. Þessi málflutningur byggir á afar veikum grunni, svo ekki sé meira sagt.

Mikilvægt er að hafa í huga að í alþjóðlegum samanburði er tekjujöfnuður óvíða meiri en hér á landi. Nýjustu fáanlegar tölur, hvort sem er frá evrópsku hagstofunni eða OECD, setja Ísland í eitt af efstu sætunum þegar horft er til þess hvar tekjur eru jafnastar. Þannig hefur það verið um langt skeið og engar vísbendingar hafa komið fram, sem benda til þess að sú staða hafi breyst. Undanfarin ár hefur Ísland verið í hópi þeirra fimm ríkja, sem búa við hvað mestan jöfnuð á mælikvarða þessara stofnana og kemur t.d. betur út en hin Norðurlöndin.

Ágætt er að hafa þetta í huga þegar rætt er um skattapólitík og verk síðustu ríkisstjórna á því sviði. Á undanförnu kjörtímabilum hefur tekjuskattur einstaklinga verið lækkaður umtalsvert og hafa breytingarnar meðal annars haft það markmið að lækka skatta millitekju- og láglaunafólks. Þetta var eitt af því sem ríkisstjórnin lagði fram til að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði 2019, lífskjarasamningunum svonefndu, en stefnumörkunin er þó eldri. Sjálfstæðisflokkurinn lagði sérstaka áherslu á það í kosningabaráttunni 2017 að lækka neðra þrepið í tekjuskattskerfinu til þess að skattalækkanir nýttust helst þeim tekjulægstu og það markmið skilaði sér inn í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, sem mynduð var þá um haustið. Þessar skattalækkanir tóku svo gildi í tveimur áföngum í kjölfar lagabreytinga 2019 og þrátt fyrir að endanleg útfærsla hafi þegar upp var staðið orðið flóknari en við sjálfstæðismenn hefðum helst kosið er óumdeilt að markmiðið náðist.

Fyrir kosningarnar á laugardaginn höfum við frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins lagt áherslu á að halda áfram á sömu braut. Við teljum að áframhaldandi skattalækkanir á tekjur alls almennings séu áhrifarík leið til að bæta kjör fólksins í landinu. Við erum líka þeirrar skoðunar að skattalækkanir á atvinnurekstur séu mikilvægar til að skapa fyrirtækjunum svigrúm til að vaxa og dafna. Við vísum til þess árangurs sem við höfum náð á þessu sviði á undanförnum árum en erum sannfærð um að hægt sé að gera betur. Um leið andmælum við fjölbreyttum hugmyndum ýmissa stjórnmálaflokka um skattahækkanir, sem eru vísasta leiðin til að draga úr slagkrafti efnahagslífsins og hamla þeim vexti, sem við þurfum á að halda til að tryggja Íslendingum betri lífskjör á komandi árum.

Greinin birtist á visir.is 20. september 2021.