Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hefst í dag. Jafnframt verður kosið á laugardaginn kemur, 19. júní
Kjörstaðir eru víða um kjördæmið og má sjá þá og opnunartíma þeirra hér.
Þeir sem verða utan kjördæmisins á laugardag eru hvattir til að kjósa í dag.
Hægt er að kjósa utankjörfundar í dag og á föstudag frá 10-16 í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík.
Taktu þátt í lýðræðisveislunni og kjóstu þá sem þú vilt að skipi lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Skoða má sýnishorn af kjörseðli hér.
Vakin er athygli á því að kjósa ber 4 frambjóðendur í töluröð, hvorki fleiri né færri!
Kosið skal með því að setja tölustafina 1 til 4 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann óskar að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, töluna 2 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti annað sætið í prófkjörinu, töluna 3 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og 4 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti fjórða sætið í prófkjörinu.
Yfirstrikanir gera kjörseðilinn ógildan.