Níu frambjóðendur taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 29. maí nk.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi kom saman nú fyrir hádegið og fór yfir framboð sem bárust áður en framboðsfrestur rann út. Voru þau öll úrskurðuð gild.
Um er að ræða 3 konur og 6 karla. Meðalaldur frambjóðenda er 47 ár. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt 5 frambjóðendur.
Frambjóðendur eru:
| Ásmundur Friðriksson | Alþingismaður | Reykjanesbæ |
| Björgvin Jóhannesson | Fjármálastjóri | Sveitarfélaginu Árborg |
| Eva Björk Harðardóttir | Oddviti Skaftárhrepps | Skaftárhreppi |
| Guðbergur Reynisson | Framkvæmdastjóri | Reykjanesbæ |
| Guðrún Hafsteinsdóttir | Markaðsstjóri | Hveragerði |
| Ingveldur Anna Sigurðardóttir | Laganemi | Rangárþingi eystra |
| Jarl Sigurgeirsson | Skólastjóri | Vestmannaeyjum |
| Margeir Vilhjálmsson | Framkvæmdastjóri | |
| Vilhjálmur Árnason | Alþingismaður | Grindavík |

