„Nýrri Orkustefnu fylgir skýr framtíðarsýn um sjálfbæra orkuframtíð. Það eru dýrmæt og mikilvæg tímamót að þverpólitísk sátt hafi náðst um framtíðarsýn, leiðarljós og tólf meginmarkmið Íslands í orkumálum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en hún kynnti í dag langtíma orkustefnu fyrir Ísland, þá fyrstu sem unnin er með þessum hætti, undir yfirskriftinni „Orkustefna til ársins 2050: Sjálfbær orkuframtíð.“
„Með Orkustefnu er stefnt að því að gæta hagsmuna núverandi sem komandi kynslóða. Sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi með jafnvægi á milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta,“ segir í frétt um málið á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Þar segir einnig að orkustefnan hafi verið unnin í þverpólitísku samstarfi og samráði við hagsmunaaðila, þ.m.t. fulltrúa allra þingflokka og fjögurra ráðuneyta. Einhugur var um niðurstöðuna.
„Það var lykilatriði að marka þessa stefnu með breiðri samstöðu og samráði,“ segir Þórdís Kolbrún og ennfremur: „Þegar við skoðum meginmarkmiðin tólf sjáum við að við eigum mörg óunnin verkefni. Þar liggja gríðarleg sóknarfæri. Stefnan leysir auðvitað ekki öll ágreiningsmál en hún leiðir fram hvað við getum verið sammála um þegar við setjumst niður í einlægum vilja til að koma okkur saman um grundvallarmarkmið. Það er ekki bara mikilvægt heldur nauðsynlegur vegvísir til framtíðar. Ég vil þakka starfshópnum, starfsmönnum hans og öllum öðrum sem unnu að stefnunni fyrir að leggja þann metnað og alúð í þetta verkefni sem afurðin endurspeglar. Næstu skref eru að setja fram árangursvísa og aðgerðir sem byggja á markmiðum stefnunnar, en fjöldi verkefna sem styðja við stefnuna er þegar kominn vel á veg.“