Utanríkisþjónustan leggi atvinnulífinu lið
'}}

„Utanríkisþjónustan hefur sýnt hvers hún er megnug á undanförnum vikum. Með samstilltu átaki tókst að aðstoða þúsundir Íslendinga á heimleið og tók um helmingur alls starfsfólks utanríkisráðuneytisins þátt í þeirri vinnu. Hugmyndin er því að nýta styrkleika og sveigjanleika þjónustunnar í þágu atvinnulífsins enda þurfum við öll að standa saman næstu misserin til að standa vörð um velsæld landsmanna,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í tilefni af því að starfshópur utanríkisráðherra um stuðning utanríkisþjónustunnar við útflutningsgreinar skilaði skýrslu sinni fyrir helgi.

Ráðherra afhenti fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands og Íslandsstofu skýrsluna á föstudag.

Starfshópurinn var skipaður í byrjun maí til þess að móta tillögur að því hvernig utanríkisþjónustan geti betur stutt við atvinnulífið vegna efnahagslega afleiðinga COVID-19 heimsfaraldursins. Starfshópurinn var skipaður þeim Auðunni Atlasyni sendiherra, Diljá Mist Einarsdóttur, aðstoðarmanni ráðherra, og Einari Gunnarssyni sendiherra. Hópurinn hefur nú sett fram tólf tillögur að breyttum áherslum í starfi utanríkisþjónustunnar á næstu mánuðum og misserum.

Ráðherra segir að hugmyndin að skipun hópsins hafi kviknað þegar mesti kúfurinn í borgaraþjónustu ráðuneytisins var yfirstaðinn.

Í skýrslunni er að finna tólf tölusettar tillögur til ráðherra sem skiptast í fjóra flokka.

„Í fyrsta lagi er um að ræða tillögur sem lúta að efldri aðstoð við íslensk útflutningsfyrirtæki, í öðru lagi eru tillögur um gerð og rekstur alþjóðasamninga á sviði milliríkjaviðskipta, þriðji flokkur tillagna snýr að almennri meðferð utanríkismála og í fjórða lagi er um að ræða tillögur um starfshætti utanríkisþjónustunnar,“ segir í frétt á vef utanríkisráðuneytisins.

Starfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að beita megi utanríkisþjónustunni með afgerandi hætti til aukins stuðnings íslenskum útflutningshagsmunum en um leið að leggja verði áframhaldandi rækt við aðkallandi úrlausnarefni á sviði alþjóðamála sem ætla má að muni magnast upp vegna COVID-19.

Vinna hópsins byggði á innleggi frá aðilum atvinnulífsins og starfsfólki ráðuneytisins, og sömuleiðis á fjölmörgum samtölum við starfsfólk og haghafa. Tillögurnar eru settar fram til að skerpa enn betur á áherslum í starfi utanríkisþjónustunnar á næstu mánuðum og misserum og er það mat starfshópsins að tillögurnar séu vel til þess fallnar.

Skýrsla vinnuhópsins í heild.