Fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir umfangsmiklu tekjutapi verður gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til að tryggja réttindi launafólks og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja. Hlutastarfaleiðin verður framlengd til hausts með breytingum og settar verða einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja sem miða að því þau geti komist í skjól með einföldum hætti.
Þetta kom frá á fundi í Safnahúsinu í dag þar sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar kynntu þriðja aðgerðapakka sinn vegna COVID-19. Fyrsti og annar aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar voru kynntir 24. mars og 24. apríl. Sjá nánar hér.
Markmið aðgerðanna er að draga úr þeim skaða sem umfangsmiklar uppsagnir og fjöldagjaldþrot valda þannig að staðinn verði vörður um réttindi launafólks á sama tíma og stuðlað verði að kröftugri viðspyrnu efnahagslífsins.
Hlutastarfaleiðin verður framlengd án breytinga með 25% lágmarksstarfshlutfalli út júní en lágmarkið hækkar í 50% í júlí og stendur úrræðið í boði til 31. ágúst.
Settar verða tímabundið einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Byggt verður á þeim grunnreglum sem nú gilda og miða breytingarnar að því að fyrirtæki geti komist í skjól á einfaldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og þar til meiri vissa fæst um framtíðarhorfur. Breytingar lúta m.a. að skilyrðum fjárhagslegrar endurskipulagningar, beiðni og umfjöllun um hana, tímafrestum, heimildum til ráðstafana og riftunar- og vanefndaheimildum viðsemjenda.
Til að tryggja réttindi launafólks og forða gjaldþrotum eins og kostur er mun fyrirtækjum gefast kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Hámarksgreiðsla á mánuði verður 633 þúsund á mánuði í allt að þrjá mánuði auk orlofs eða að hámarki 85% tekna og einskorðast við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir að lágmarki 75% tekjufalli og sjá fram á áframhald á því út árið. Starfsmenn skulu eiga forgang til starfs þegar starfsemi hefst að nýju og halda tilteknum áunnum réttindum. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. september.
Unnið er að frumvörpum um tillögurnar í félagsmála-, fjármála- og efnahags- og dómsmálaráðuneyti. Samráð verður haft við aðila vinnumarkaðarins um endanlegar útfærslur.