Ríkisstjórnin munu beita sér fyrir sjö aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt efnahagslíf vegna áhrifa frá COVID-19. Þá verður ríkisfjármálaáætlun endurskoðuð og unnið er að sérstöku fjárfestingaátaki.
Þetta kom fram á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í ráðherrabústaðnum í dag sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynntu.
Aðgerðirnar sjö eru:
- Fyrirtækjum sem lenda í tímabundnum rekstrarörðuleikum vegna tekjufalls verður veitt svigrúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opinberum gjöldum.
- Skoðað verður að fella tímabundið niður tekjuöflun sem er íþyngjandi fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu, t.d. gistináttaskatt.
- Markaðsátaki verður hleypt af stokkunum erlendis þegar aðstæður skapast til þess að kynna Ísland sem áfangastað, auk átaks til að hvetja til ferðalaga Íslendinga innanlands.
- Gripið verður til ráðstafana sem örvað geta einkaneyslu og eftirspurn, t.d. með skatta- eða stuðningskerfum.
- Aukinn kraftur verður settur í framkvæmdir á vegum opinberra aðila á yfirstandandi ári og þeim næstu.
- Efnt verður til virks samráðs milli stjórnvalda og samtaka fjármálafyrirtækja um viðbrögð þeirra við fyrirsjáanlegum lausafjár- og greiðsluörðuleikum fyrirtækja í ferðaþjónustu.
- Innstæður ÍL-sjóðs í Seðlabankanum verða fluttar á innlánsreikninga í bönkum til að styðja við svigrúm banka og lánardrottna til að veita viðskiptamönnum sínum lánafyrirgreiðslu.
Þessar aðgerðir voru samþykktar á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Aðgerðirnar miða að því að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.
Fjármálaáætlun frestað
Á blaðamannafundinum var einnig tilkynnt að vegna gjörbreyttra efnahagslegra forsenda verði fjármálaáætlun lögð fram í maí.
Forsendur gildandi ríkisfjármálastefnu eru brostnar og er vinna við endurskoðun stefnunnar hafin. Fjármálaráðherra mun fara þess á leit við Alþingi að hún verði tekin til umfjöllunar samhliða fjármálaáætlun, sem verði frestað.
Áætlunin ætti að óbreyttu að koma fram fyrir 1. apríl en stefnt er að því að leggja hana fram eftir miðjan maí, enda hafi þá nauðsynlegar forsendur skýrst.
Unnið er að sérstöku fjárfestingaátaki
Samhliða vinnu við endurskoðun fjármálastefnu er unnið að sérstöku fjárfestingarátaki sem felur í sér verulega hækkun á fjárfestingastigi ríkissjóðs á næstu árum. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir sölu Íslandsbanka að hluta eða öllu leyti á áætlunartímabilinu, en þó eingöngu ef aðstæður til sölu eru hagfelldar.
Á vorþingi verður lagt fram frumvarp um afmarkaðar samstarfsfjárfestingar í vegamálum og þannig stuðlað að enn öflugri fjárfestingargetu til framtíðar.