Eyþór Arnalds oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur:
Úttekt Borgarskjalasafns Reykjavíkur á braggamálinu staðfestir að lög voru brotin. Þar kemur einnig í ljós að reynt var að fela skjöl og upplýsingar fyrir fjölmiðlum og kjörnum fulltrúum. Tölvupóstum var eytt án þess að skjöl væru vistuð. Í skýrslunni er „tekið fram að misbrestir í skjalavörslu og skjalastjórn hjá SEA eru ekki einsdæmi hjá starfseiningum Reykjavíkurborgar. Niðurstaða skýrslu Borgarskjalasafns um skjalastjórn og skjalavörslu hjá Reykjavíkurborg frá 2018 sýndi að minnihluti afhendingarskyldra aðila uppfyllti lagaskilyrði í þessum efnum.“ Með öðrum orðum; skjalavarsla vegna braggans var ekki einsdæmi eða „frávik“.
Varað ítrekað við
Þessi skýrsla kemur ári eftir að svört skýrsla innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar var birt. Báðar þessar eftirlitsstofnanir borgarinnar höfðu varað við. Sérstök skýrsla innri endurskoðunar um SEA sem heyrði undir skrifstofu borgarstjóra birtist árið 2015. Þar voru þrjátíu ábendingar en aðeins sex þessara atriða voru komin í lag fjórum árum síðar. Þá hafði Borgarskjalasafnið varað við í skýrslu í október 2018, en þar kom fram að ástand skjalavörslu hefði almennt versnað hjá borginni á fjórum árum. Tvær eftirlitsstofnanir vara við, en ekki var brugðist við. Á sama tíma var SEA með ýmis þróunarverkefni og var eitt þeirra bragginn í Nauthólsvík. Þá vakti fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í innkauparáði athygli á málinu og óskaði ítrekað eftir skýringum. Þær fengust afar seint. Nú þegar staðfest er að lög hafa verið brotin er rétt að farið verði ítarlega yfir þessi atriði af réttbærum aðilum. Yfirferð borgarlögmanns mun litlu bæta við nema hann vísi málinu áfram.
Braggi borgarstjóra
Borgarstjóri ber hins vegar margfalda ábyrgð í þessu máli. Hann er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. SEA heyrði undir skrifstofu borgarstjóra, sem var í beinu sambandi vegna verkefnanna. Skjalavarslan var líka á ábyrgðarsviði skrifstofu borgarstjóra. En hann er líka pólitískur oddviti meirihlutans og ber því ábyrgð sem slíkur. Margur fyrir minni sakir víkur. Á meðan þessi meirihluti starfar áfram er von á að fátt breytist í raun. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða hætti eftir að sú stofnun fór sér að voða í framkvæmdum. Skrifstofustjóri SEA hætti og tók á sig sök í braggamálinu. Framkvæmdastjóri SORPU, dótturfélags borgarinnar, hefur verið látinn fara vegna framúrkeyrslu félagsins. Allt er þetta á sömu bókina lært. Allt er þetta undir stjórn sama meirihluta í borgarstjórn. Undir stjórn sama borgarstjórans í ráðhúsinu.
Greinin birtist i Morgunblaðinu 21. febrúar 2020.