Egill Þór Jónsson borgarfulltrúi:
Talið er að 80 ótímabær dauðsföll eigi rót sína að rekja til svifryksmengunar á Íslandi. Á þessu ári hefur svifryk farið 14 sinnum yfir heilsuverndarmörk. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í september á síðastliðnu ári tillögu eða yfirlýsingu um að svifryk færi aldrei yfir heilsuverndarmörk. Í kjölfarið lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram tillögu að aðgerðaáætlun til að bæta loftgæði borgarinnar svo svifryk færi ekki yfir heilsuverndarmörk.
Auðvelt að bregðast strax við
Meðal aðgerða sem lagðar voru til í tillögunni var endurskoðun á efnisvali borgarinnar varðandi gæði efna í malbiki, þrif yrðu aukin á umferðaræðum (sópun, þvottur og rykbinding), að frítt verði í strætó á „gráum dögum“, takmörkun þungaflutninga með efni sem valdið geta svifryksmengun á „gráum dögum“, dregið úr notkun nagladekkja í borgarlandinu og að íbúar í fjölbýlishúsum geti hlaðið rafbíla með auðveldum hætti, að nýting affallsvatns verði notuð í auknum mæli til að hita upp göngu- og hjólastíga borgarinnar og að endingu að unnið verði gegn dreifingu byggðar.
Samþykkja ekki þvingunaraðgerðir
Síðan tillagan var lögð fram hafa liðið rúmir átta mánuðir og svifryk mælist ítrekað yfir heilsuverndarmörkum. Fulltrúar meirihlutans hafa viðrað hugmyndir um takmarkanir og þvinganir á umferð þegar loftgæði eru slæm. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mun aldrei styðja slíkar hugmyndir meirihlutans í borginni fyrr en unnið hefur verið að aðgerðaáætlun Sjálfstæðisflokksins. Sem betur fer hafa allir bæjarstjórar höfuðborgarsvæðisins einnig tekið fyrir að fara í slíkar aðgerðir.
Áhugaleysi meirihlutans
Loftgæðamálin virðast meirihlutanum mjög viðkvæm enda hefur skynsöm fullbúin tillaga þess efnis beðið afgreiðslu í rúmlega átta mánuði. Skyldi ástæða þess að málið hafi ekki fengið afgreiðslu vera að meirihlutinn í Reykjavík hefur lítinn áhuga á að laga loftgæðamálin í Reykjavík, vegna þess að það hentar ekki hans pólitík? Því er strax stokkið á þær hugmyndir að banna og þvinga fólk til hegðunar sem það hefði ekki kosið sér sjálft, í stað þess að vinna að lausnum vandamálsins.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 5. desember 2019.