Átta manns gefa kost á sér til stjórnar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Jón Karl Ólafsson gefur einn kost á sér til formanns Varðar og verður hann því sjálfkjörinn á aðalfundi fulltrúaráðsins sem fram fer næstkomandi fimmtudag, 5. desember, kl. 17:00 í Valhöll. Kosið verður um sjö stjórnarsæti á aðalfundinum.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörsins rann út kl. 16:00 í gær, en fyrir þann tíma bárust 8 framboð til stjórnar Varðar og voru þau öll úrskurðuð gild.
Eftirfarandi aðilar eru í framboði til formanns Varðar:
Jón Karl Ólafsson
Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar Varðar:
Ásmundur Sveinsson
Einar Hjálmar Jónsson
Einar Sigurðsson
Elín Engilbertsdóttir
Gunnar Páll Pálsson
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Matthildur Skúladóttir
Þórarinn Stefánsson