„Með því að fella þessar reglugerðir brott er verið að hreinsa til í regluverkinu á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs. Þar með er öllum þeim sem þurfa að fylgja því auðveldað að sjá í gegnum skóginn. Við munum á næstunni vinna að enn frekari einföldun regluverks. Það er eitt af forgangsmálum í ráðuneytinu“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem í morgun felldi brott 1.090 reglugerðir á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar.
Breytingarnar eru liður í einföldun regluverks sem er forgangsverkefni í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Þar segir að gert verði átak í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings og lögð áhersla á skilvirka og réttláta stjórnsýslu.
Einföldunin er meðal annars gerð með því að uppfæra, sameina og fella brott reglugerðir, þannig að rúmlega 100 eldri reglugerðir á sviði sjávarútvegs verða að 8 nýjum. Sem gerir það að verkum að regluverk á sviði sjávarútvegs verður aðgengilegra.
Einnig er um að ræða reglugerðahreinsun sem fellir brott tímabundnar reglugerðir sem hafa ekki lengur gildi. Auk þess falla brott reglugerðir sem meðal annars hafa verið settar með stoð í lögum sem þegar hafa verið felld úr gildi. Allt er þetta liður í fyrsta áfanga aðgerðaáætlunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til næstu þriggja ára sem lítur að einföldun regluverks.
Einföldunarfrumvarp komið í samráðsgáttina
„Meginverkefni okkar á að vera að horfa á þær reglur sem hafa verið settar gagnrýnum augum og lágmarka þær eins og mögulegt er, til að stuðla að aukinni verðmætasköpun, meiri skilvirkni, meiri samkeppni, lægra verði og betri lífskjörum. Þar höfum við svo sannarlega verk að vinna,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en lagafrumvarp hennar um breytingar á ýmsum lögum til einföldundar regluverks er nú í samráðsgátt stjórnvalda.
Frumvarpið er fyrsti áfangi af þremur í aðgerðaráætlun ráðuneytisins um einföldun regluverks á þessum málefnasviðum sem ráðgert er að standi yfir fram á mitt ár 2021.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem fela í sér að skráningum verslana verði hætt, iðnaðarleyfi og leyfi til sölu notaðra ökutækja verði lögð af, ráðherra fái heimild til að framselja vald til að veita undanþágur á grundvelli laga um samvinnufélög, auk annarra atriða sem horfa til einföldunar. Loks er lagt til í frumvarpinu brottfall 16 úreltra laga sem ekki hafa sérstakt gildi lengur.