Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
Á nýafstöðnum þingvetri var mörgum veigamiklum málum lokið er snerta tvær af undirstöðuatvinnugreinum okkar Íslendinga, landbúnað og sjávarútveg. Ég vil af því tilefni rifja upp megininntak þeirra mála.
Nýtt hafrannsóknaskip
Samhljóða ákvörðun Alþingis sl. sumar um að hafin verði smíði hafrannsóknaskips markar tímamót í hafrannsóknum Íslendinga. Ákvörðunin var mikilvægur áfangi í því að efla hafrannsóknir líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Við styrkjum stöðu Íslands sem fiskveiðiþjóðar enda eru öflugar hafrannsóknir nauðsynleg undirstaða verðmætasköpunar í sjávarútvegi. Í vor skipaði ég byggingarnefnd vegna þessarar smíði og er sú vinna í fullum gangi.
Álagning veiðigjalds einfölduð
Eitt af stóru verkefnum síðasta árs var að lagfæra þá flóknu og óstöðugu gjaldtöku sem íslenskur sjávarútvegur hefur búið við síðastliðin ár. Afrakstur þeirrar vinnu kom fram á Alþingi í september þegar að ég lagði fram frumvarp um veiðigjald. Frumvarpið var samþykkt í desember. Með því var álagning gjaldsins færð nær í tíma og er meira í takt við afkomu sjávarútvegsfyrirtækja. Jafnframt er stjórnsýsla með álagningu veiðigjalds orðin einfaldari, skilvirkari og áreiðanlegri.
Endurskoðun búvörusamninga
Endurskoðun búvörusamninga stendur yfir. Í janúar sl. var skrifað undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að auknu jafnvægi framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir, auka frelsi sauðfjárbænda og auðvelda þeim að takast á við sveiflur í ytra og innra umhverfi greinarinnar. Þetta samkomulag var bundið í lög nú í vor.
Eftir er að ljúka viðræðum um endurskoðun rammasamnings og samninga um nautgriparækt og garðyrkju en ég vonast til að þeim verði lokið síðar á þessu ári. Í því felast dýrmæt tækifæri fyrir alla hlutaðeigandi; bændur, neytendur og stjórnvöld.
Makríll hlutdeildarsettur
Til að bregðast við dómi Hæstaréttar frá því í desember sl. lagði ég í vor fram frumvarp þar sem lagt var til að aflamarksstjórn yrði tekin upp við veiðar á makríl. Með frumvarpinu var þannig lagt til að um stjórn veiðanna fari með sambærilegum hætti og gildir um helstu nytjastofna Íslands en jafnframt að koma í veg fyrir áframhaldandi skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins í kjölfar dóms Hæstaréttar.
Frumvarpið var samþykkt á Alþingi í júní og hefur Fiskistofa nú úthlutað aflahlutdeild í makríl. Aflahlutdeild er úthlutað á grundvelli tíu bestu aflareynsluára á árunum 2008–2018, að báðum árum meðtöldum. Tekið er tillit til hagsmuna allra þeirra sem stundað hafa þessar veiðar, en í mismiklum mæli eðli máls samkvæmt.
Lagaumhverfi fiskeldis styrkt
Í vor lagði ég fram tvö frumvörp um fiskeldi, annars vegar um breytingar á ýmsum lögum um fiskeldi og hins vegar um gjaldtöku. Bæði frumvörp voru samþykkt í síðasta mánuði.
Með samþykkt Alþingis á fyrrnefnda frumvarpinu voru stigin stór skref til að styrkja lagaumhverfi fiskeldis en um leið ýtt undir að fiskeldi verði sterk og öflug atvinnugrein þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðarljósi. Þannig má nefna að áhættumat erfðablöndunar var lögfest og þannig tryggt að það verði lagt til grundvallar leyfilegu magni af frjóum eldislaxi í sjókvíum á hverjum tíma. Ráðherra staðfesti tillögu Hafrannsóknastofnunar að áhættumati hverju sinni. Þá var sett á fót samráðsnefnd um fiskeldi sem verður stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis. Markmið þessa er að styrkja vísindalegan grundvöll áhættumatsins og stuðla að nauðsynlegu samráði um uppbyggingu fiskeldis. Jafnframt má nefna mikilvæga breytingu sem felst í vöktun og heimild til aðgerða vegna laxalúsar og annarra sjúkdóma.
Tillögur um gjaldtöku á fiskeldi komu fyrst fram í skýrslu starfshóps um stefnumótun í fiskeldi sem skilaði niðurstöðum sínum í ágúst 2017 en þar áttu sætu fulltrúar stjórnvalda og hagsmunaaðila. Með lögunum sem Alþingi hefur samþykkt er mælt fyrir um töku gjalds vegna nýtingar eldissvæða í sjó og stofnun fiskeldissjóðs til að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Lögin mæla fyrir um gjald á hvert kíló slægðs fisks sem ræðst af tilteknu hlutfalli af alþjóðlegu markaðsverði en samskonar gjaldtaka þekkist í Færeyjum og er til skoðunar víða. Í ljósi þess að íslenskt fiskeldi sem atvinnugrein er komið skemmra á veg en fiskeldi í Færeyjum var ákveðið að hafa sjö ára aðlögun að fullu gjaldi. Jafnframt var ákveðið að hafa gjaldhlutfallið lægra en í Færeyjum. Þá er í lögunum að finna hvata til að stuðla að eldi á ófrjóum lax og laxi sem alinn er í lokuðum eldisbúnaði en slíkt eldi verður gjaldfrjálst til ársins 2029 en eftir það mun hálft gjald, þ.e. fá 50% afslátt af því gjaldi sem greiða þarf fyrir frjóan eldislax.
Ólögmætu ástandi aflétt
Alþingi samþykkti í síðasta mánuði frumvarp mitt um afnám hinnar svokölluðu frystiskyldu á m.a. kjöti sem flutt er til Íslands frá Evrópska efnahagssvæðinu. Með frumvarpinu er brugðist við skýrum dómum EFTA-dómstólsins og Hæstaréttar Íslands. Með því verður loks framfylgt þeirri skuldbindingu sem Alþingi samþykkti og tók gildi árið 2011. Þannig verður hinu ólögmæta ástandi, sem nú hefur varað í um átta ár, aflétt og endi bundinn á ótakmarkaða skaðabótaskyldu íslenska ríkisins.
Frumvarpið er afrakstur vinnu sem hefur átt sér stað í mínu ráðuneyti undanfarna 18 mánuði. Stærstur hluti hennar hefur falist í að móta umfangsmikla og nauðsynlega aðgerðaáætlun til að tryggja öflugar varnir og öryggi matvæla og búfjárstofna. Jafnframt hafa verið undirbúnar aðgerðir til að styrkja samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Hluti þessara aðgerða snýr beint að afnámi leyfisveitingakerfisins en stærstum hluta þeirra er með almennum hætti ætlað að stuðla að fyrrgreindum markmiðum. Samhliða samþykkt frumvarpsins var aðgerðaáætlunin samþykkt með öllum greiddum atkvæðum sem sérstök þingsályktun til að undirstrika mikilvægi þeirri aðgerða sem þar er að finna. Sú áætlun mætir þeim áskorunum sem fyrrgreindar breytingar leiða af sér en um leið felast í henni mikil tækifæri fyrir íslenska matvælaframleiðslu.
Afrakstur framangreindrar vinnu er samstillt átak þar sem ólögmætt leyfiskerfi er afnumið á sama tíma og öryggi matvæla og vernd búfjárstofna er treyst enn frekar. Þetta eru tímamót í mínum huga og fagnaðarefni. Tækifærin sem framangreind verkefni fela í sér fyrir íslenska matvælaframleiðslu blasa við. Verkefni næstu mánaða verður að framfylgja þeim af festu og geng ég bjartsýnn til þess verks.
Einföldum regluverks
Eitt af forgangsverkefnum síðustu missera, og verður áfram, er að tryggja að íslensk matvælaframleiðsla búi við einfalt og skilvirkt eftirlit. Í mínu ráðuneyti á sér stað markviss vinna í þessa veru og vonast ég eftir að við munum stíga markverð skref í þeim efnum á komandi hausti.
Traustar stoðir
Um framgang sumra þessara mál hafa verið skiptar skoðanir og sitt sýnist hverjum. Slíkt er eðlilegt þegar ólíkir hagsmunir takast á. Ég er þó sannfærður um að öll þessi mál eru til þess fallin að styrkja stoðir íslensks sjávarútvegs og landbúnaðar til skemmri og lengri tíma.
Á komandi hausti blasa við fleiri tækifæri til frekari sóknar íslenskrar matvælaframleiðslu. Eftir að hafa í tveimur hringferðum um landið á þessum þingvetri upplifað kraftinn og eldmóðinn sem býr í fólki og fyrirtækjum hringinn í kringum landið geng ég bjartsýnn til þeirra verka sem bíða okkar á komandi misserum.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 4. júli 2019.