„Við höfum síðustu vikur skoðað mismunandi fleti þessa mikilvæga máls. Eftir þá skoðun tel ég rétt að óska endurskoðunar hjá yfirdeild Mannréttindadómstólsins. Ég tel brýnt að fara þessa leið í ljósi þess hve mikilvæga hagsmuni málið snertir hér á landi. Ég mun halda áfram að skoða aðra fleti málsins en á þessu stigi verða ekki teknar frekari ákvarðanir,” segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og dómsmálaráðherra um þá ákvörðun sína að íslenska ríkið myndi óska eftir endurskoðun yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu á dómi MDE í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi sem féll þann 12. mars sl.
Þar komst meirihluti dómsins að þeirri niðurstöðu að annmarkar á meðferð ráðherra og Alþingis við skipan eins dómara við Landsrétt fælu í sér brot gegn áskilnaði 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) um að skipan dómstólsins sé ákveðin með lögum.
Í frétt á vef dómsmálaráðuneytisins segir að dómur MDE hafi ekki aðeins áhrif hér á landi heldur einnig um alla Evrópu hvað varði spurningar um hvort skipan dómstóla sé ákveðin með lögum í þeim skilningi sem lagður er til grundvallar í niðurstöðu meirihluta dómsins.
Þar kemur einnig fram að það sé mat sérfræðinga dómsmálaráðuneytisins eftir samráð við ríkislögmann og dr. Thomas Horn, málflutningsmann og sérfræðing í mannréttindum og réttarfari að leita eigi endurskoðunar á dómi MDE enda veki málið upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu.
Talið er að niðurstaða um hvort yfirdeildin taki dóminn til endurskoðunar fáist innan fárra mánaða.