Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi:
Vestræn samfélög þróast á hraða ljóssins. Fjármálaumhverfið er stöðugum breytingum háð og fórða iðnbyltingin færir okkur áður óþekktar áskoranir. Mikilvægt er að vera meðvituð um þau flóknu viðfangsefni sem verða afleiðingar framfara – en grípa jafnframt tækifærin sem fylgja.
Vinnumarkaður framtíðar er talinn verða gjörólíkur þeim veruleika sem við þekkjum í dag. Tæknin muni skapa fjölmörg störf en samhliða leysa önnur af hólmi. Menntakerfið þurfi að búa börn betur undir gjörbreytt atvinnulíf. Úrlausn flókinna vandamála, skapandi og gagnrýnin hugsun verði meðal lykilþátta á þeirri vegferð. Þeir sem tileinki sér slíka færni verði betur í stakk búnir til að takast á við ný störf og breyttan veruleika.
Fjölmargar erlendar þjóðir hafa lagt ríka áherslu á bætt fjármálalæsi almennings. Fólk verði að geta notast við gagnrýna hugsun þegar teknar eru flóknar fjárhagslegar ákvarðanir. Árið 2012 lýsti þáverandi aðalritari Sameinuðu þjóðanna yfir eindregnum stuðningi við eflingu fjármálalæsis meðal ungs fólks. Hann taldi auðsýnt að slíkt myndi leiða til aukinnar atvinnuþátttöku og nýsköpunar. Framkvæmdastjóri OECD hefur tekið í sama streng og lýst áhyggjum af því hvernig sífellt yngra fólk kljáist nú við flóknar ákvarðanir í fjármálum.
Hlutfall ungs fólk, á aldrinum 18-29 ára, sem leitar til Umboðsmanns skuldara í greiðsluvanda vegna smálána hefur margfaldast á undanliðnum árum. Auka þarf skilning ungs fólks á þeirri fjárhagslegu ábyrgð sem fylgir slíkri lántöku og efla gagnrýna hugsun við flókna ákvarðanatöku. Það er liður í fjárhagslegu heilbrigði en ekki síður undirbúningi fyrir störf framtíðar.
Ég tel rétt að grunnskólar Reykjavíkur tryggi nemendum á unglingastigi kennslu í fjármálalæsi. Þannig mætti fyrirbyggja skuldsetningu umfram greiðslugetu og móta heilbrigt viðhorf til fjármála. Árið 2021 mun Ísland í fyrsta sinn taka þátt í fjármálalæsishluta PISA könnunarinnar. Það er mikilvægt að undirbúa nemendur fyrir mælinguna, en fyrst og fremst er mikilvægt að undirbúa ungmenni undir krefjandi áskoranir fullorðinsára – því lánið er valt og lukkan hál.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 3. apríl 2019.