2.000 milljónum varið í þyrlukaup hjá Gæslunni
'}}

2.000 milljónum verður varið til kaupa á þremur nýjum þyrlum til Landhelgisgæslunnar á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem nú bíður þriðju og síðustu umræðu á Alþingi. Þá verður 225 milljónum varið í að uppfæra búnað í flugvélinni TF-SIF.

Þetta er stórt skref í átt að því að efla flugflota Gæslunnar.

Málefni Landhelgisgæslunnar heyra undir Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra og í vor þegar þessi áform voru kynnt sagði ráðherra í samtali við mbl.is: „Svona hafa aðstæðurn­ar verið í mörg ár, en núna verður breyt­ing á og ég hef lagt á það áherslu að Land­helg­is­gæsl­unni verði gert kleift að mæta þess­um lög­bundnu skyld­um sín­um sem hún hef­ur.“

Landhelgisgæslan rekur nú þrjár þyrlur, TF-GNA, TF-LIF og TF-SYN. Sú elsta, TF-LIF er árgerð 1987 og því orðin rúmlega þrjátíu ára. Það er því orðin full þörf á endurnýjun.

Landhelgisgæslan gegnir veigamiklu öryggishlutverki innan íslenskrar lögsögu, hvort sem er við öryggis-, löggæslu og eftirlit á hafi, leit og björgun, sjúkraflutninga eða aðstoð við almannavarnir svo dæmi séu tekin.

Þyrluáhöfnum Gæslunnar fjölgað á næsta ári

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar birtist einnig áherslu á eflingu Landhelgisgæslunnar en þar segir: „Tryggja þarf Landhelgisgæslunni nægilegt fjármagn til að rækja starf sitt.

Mikilvægt er að Landhelgisgæslan hafi þau tæki, tól og mannskap sem þörf er á hverju sinni til að inna starf sitt vel af hendi og tryggja betur öryggi okkar allra.

Dómsmálaráðherra hefur einnig lagt áherslu á að fjölga áhöfnum á þyrlurnar og er einnig gert ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu. Áhöfnum verður fjölgað úr fimm í sex frá og með 1. júlí 2019 og nemur fjárveitingin 138 milljónum króna.

Upplýsingar um fjárlagafrumvarp 2019 og vinnslu þess í meðförum Alþingis má finna hér.