Viðtalstímar kjörinna fulltrúa haustið 2018
Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða, frá og með föstudeginum 14. september næstkomandi, með viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Hver viðtalstími verður að hámarki 15 mínútur að lengd. Bóka verður tíma fyrirfram en starfsmaður Valhallar mun síðan úthluta viðtalstímum og taka mið af innsendum beiðnum.
Hægt verður að bóka viðtalstíma með því að senda tölvupóst á netfangið skuli@xd.is eða með því að hafa samband við Sjálfstæðisflokksins í síma 515-1700. Boðið verður upp á viðtalstíma fram í nóvember.
Dagsetningar viðtalstímanna, sem og hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.
Föstudagurinn 14. september | Föstudagurinn 26. október |
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Eyþór L. Arnalds | Jón Gunnarsson og Björn Gíslason |
Föstudagurinn 21. september | Föstudagurinn 2. nóvember |
Ásmundur Friðriksson og Hildur Björnsdóttir | Njáll Trausti Friðbertsson og Örn Þórðarson |
Föstudagurinn 28. september | Föstudagurinn 9. nóvember |
Birgir Ármannsson og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir | Óli Björn Kárason og Jórunn Pála Jónasdóttir |
Föstudagurinn 5. október | Föstudagurinn 16. nóvember |
Brynjar Níelsson og Egill Þór Jónsson | Páll Magnússon og Alexander Witold Bogdanski |
Föstudagurinn 12. október | Föstudagurinn 22. nóvember |
Bryndís Haraldsdóttir og Marta Guðjónsdóttir | Vilhjálmur Árnason og Valgerður Sigurðardóttir |
Föstudagurinn 19. október | |
Haraldur Benediktsson og Katrín Atladóttir |