Leikskólar og launamunur
'}}

Hildur Björnsdóttir, 2. sæti í Reykjavík:

Kynjajafnrétti mælist reglulega mest á Íslandi. Við stöndum framarlega í alþjóðlegum samanburði. Háskólamenntuðum konum hefur fjölgað. Feðrum býðst nú fæðingarorlof. Foreldrar deila fjölskylduábyrgð. Árangur hefur náðst í jafnréttisbaráttunni. Samt reynist konum enn torvelt að standa jafnfætis körlum á vinnumarkaði.

Nýlegar tölur sýna 10% kynbundinn launamun á Íslandi. Þeim körlum sem nýta rétt sinn til fæðingarorlofs fer fækkandi. Hundruð barna sitja föst á biðlistum eftir leikskólavist í Reykjavík. Hundruð foreldra komast ekki aftur á vinnumarkað í kjölfar barneigna. Fjölskylduvandinn er gjarnan á herðum kvenna. Mæður taka enn á sig mesta ábyrgð barnauppeldis – því betur má fórna kvennalaunum en karlalaunum. Konur sitja eftir í vítahring.

Rannsóknir sýna jákvæð áhrif barneigna á launaþróun karla, en neikvæð áhrif á launaþróun kvenna. Vinnandi konum er gjarnan falin minni ábyrgð í kjölfar barneigna en karlar hljóta aukinn framgang. Atvinnulífið virðist álykta að barneignir dragi úr framlagi kvenna á vinnumarkaði. Þessu þarf að breyta.

Það er mikilvægt að fjölskyldur eigi kost á öruggri og áreiðanlegri daggæslu strax í kjölfar fæðingarorlofs. Í dag er skortur á úrræðum og fjölskyldur lenda í vanda. Málaflokkurinn hefur verið vanræktur. Við þurfum víðtækar lausnir. Samræmt kerfi þar sem eitt úrræði tekur við af öðru og fjölskyldur festast ekki á biðlistum.

Æskilegt er að lengja fæðingarorlof og hækka þak á orlofsgreiðslum. Skapa þarf umhverfi sem hvetur báða foreldra til töku orlofs. Við munum bjóða foreldrum frelsi og val um daggæslukosti. Við munum styðja betur við bæði dagforeldrastigið og leikskólastigið. Reykjavík er í samkeppni við önnur sveitarfélög um fagmenntað starfsfólk. Við viljum gera betur svo gott fólk velji starf á leikskóla.

Núverandi meirihluti vill bjóða ódýrustu leikskólana. Ódýr þjónusta er gjarnan slæm þjónusta. Það hafa nýlegar þjónustukannanir sýnt. Ánægja með leikskóla mælist minnst í Reykjavík. Bregðast þarf við þessari óánægju. Sjálfstæðisflokkurinn leggur ekki áherslu á ódýrari leikskóla. Okkar markmið er að bjóða áreiðanlega leikskóla. Við viljum að Reykjavík verði besti búsetukosturinn. Við viljum því bjóða bestu leikskólana.

Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að tryggja öllum fjölskyldum úrræði strax í kjölfar fæðingarorlofs. Þrátt fyrir mikinn árangur í jafnréttisbaráttunni taka konur enn meiri ábyrgð á umönnun barna. Dagvistunarvandi lendir því oftar á konum og dregur úr framgangi þeirra á vinnumarkaði. Það hefur aftur áhrif á launaþróun og ýtir undir kynbundinn launamun. Við ætlum að leggja okkar af mörkum við lausn þessa vanda. Áreiðanlegar lausnir eru mikilvægt jafnréttismál – samfélaginu öllu til heilla.

Birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. maí 2018