Í kjölfar #metoo byltingarinnar hafa stjórnmálaflokkar á Íslandi tekið höndum saman og efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 22. janúar næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og stendur til 10:30. Þátttaka á fundinum er öllum opin og án endurgjalds, boðið verður upp á léttan morgunverð.
Markmið fundarins er að ræða næstu skref #metoo innan stjórnmálanna og leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum.
- Hvernig geta félagasamtök eins og stjórnmálaflokkar beitt sér fyrir því að minnka líkur á því að hvers kyns áreiti sé liðið?
- Í hvaða farveg er eðlilegt að mál sem tengjast áreiti fari innan stjórnmálaflokka?
Dagskrá fundarins:
Húsið opnar klukkan 8:00, boðið verður upp á léttan morgunverð.
- Opnunarávarp
- Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
- Metoo í skugga valdsins
- Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og talskona Metoo í skugga valdsins
- Hvar liggja mörkin?
- Valdís Ösp Ívarsdóttir, fíknifræðingur
- Óskrifaðar reglur í samskiptum
- Salvör Nordal, umboðsmaður barna
- Sjónarhorn karlmanna sem vilja axla ábygð
- Gestur Pálmason, markþjálfi
- Metoo - hvað svo
- Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu
Pallborð og umræður
Fundastjóri, Kolbrún Halldórsdóttur fv. ráðherra og forseti Bandalags íslenskra listamanna mun stýra pallborðsumræðum í kjölfar erindanna.
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar lokar fundinum.
Sýnt verður beint frá fundinum hér.