Sáttmáli Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis var undirritaður í Listasafni Íslands fimmtudaginn 30. nóvember 2017.
Í sáttmálanum eru sett fram metnaðarfull og framsýn markmið um velferð, mannréttindi og loftslagsmál, eflingu Alþingis og aukið þverpólitískt samráð, stórsókn í uppbyggingu á innviðum um allt land og eflingu heilbrigðis- og menntakerfa.
Stjórnin er skipuð þremur stærstu þingflokkunum sem spanna hið pólitíska litróf frá vinstri til hægri. Þeir eru samstíga um að bæta lífskjör og lífsgæði á Íslandi, stuðla að samfélagslegri sátt og búa þannig um hnútana að allir fái notið jafnra tækifæra.
Íslenskt samfélag stendur á tímamótum nú þegar tekist hefur að rétta við efnahag landsins og ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Ríkisstjórnin mun nýta þessa sterku stöðu til að bæta samfélagið. Hún mun leggja áherslu á að varðveita efnahagslegan stöðugleika, lækka skatta á launafólk og renna stoðum undir samkeppnishæfni landsins til framtíðar, ekki síst með auknum stuðningi við menntun og nýsköpun.
Um 100 aðgerðir og áherslumál er að finna í sáttmálanum í þágu þessara markmiða og annarra verkefna.
Áherslur og aðgerðir í stjórnarsáttmálanum eru meðal annars þessar:
- Efling Alþingis er eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarflokkanna. Sjálfstæði þingsins verður styrkt, meðal annars með auknum stuðningi við nefndastarf og þingflokka.
- Í þágu aukins samráðs og breiðari samstöðu verða þverpólitískir hópar settir á fót um nokkur veigamikil verkefni, svo sem stofnun miðhálendisþjóðgarðs, mótun orkustefnu og nýsköpunarstefnu og endurskoðun stjórnarskrárinnar.
- Heilbrigðiskerfið á að standast samanburð við það sem best gerist í heiminum og allir landsmenn eiga að fá notið góðrar þjónustu, óháð efnahag og búsetu. Átak verður gert í uppbyggingu hjúkrunarrýma, heilbrigðisstefna fyrir Ísland fullunnin, dregið úr greiðsluþátttöku sjúklinga og geðheilbrigðisáætlun hrint í framkvæmd.
- Hafin verður stórsókn í menntamálum. Stefnt verður að því að fjármögnun háskólastigsins nái meðaltali OECD-ríkjanna fyrir árið 2020. Iðnnám og verk- og starfsnám verður eflt. Framhaldsskólum verður tryggt fjármagn og frelsi til eigin stefnumótunar innan ramma framhaldsskólalaganna. Brugðist verður við yfirvofandi kennaraskorti í samstarfi við sveitarfélögin.
- Uppbyggingu í vegamálum verður hraðað, bæði nýframkvæmdum og viðhaldi. Stutt verður við borgarlínu. Ljósleiðaravæðingu landsins verður lokið 2020, afhendingaröryggi raforku aukið og átak gert í fráveitumálum í samstarfi við sveitarfélög. Sóknaráætlanir landshlutanna verða styrktar.
- Lögð verður áhersla á ábyrg ríkisfjármál og efnahagslegan stöðugleika. Til að styðja við farsæla niðurstöðu kjarasamninga hyggst ríkisstjórnin leggja áherslu á lækkun tekjuskatts í neðra skattþrepi. Þá er það einnig forgangsmál á kjörtímabilinu að lækka tryggingagjald.
- Áform um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu verða lögð til hliðar. Fjármagnstekjuskattur verður hækkaður í 22% samhliða því að skattstofn fjármagnstekna verður tekinn til endurskoðunar. Kolefnisgjöld verða hækkuð um 50% fyrst um sinn. Virðisaukaskattur af bókum verður afnuminn.
- Farið verður í endurskipulagningu á fjármálakerfinu og markviss skref tekin til að afnema verðtrygginguna á neytendalánum. Leitað verður leiða til að draga úr eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum. Gerð verður hvítbók um framtíðarsýn fyrir íslenskan fjármálamarkað og hún lögð fyrir Alþingi.
- Unnið verður með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgum vinnumarkaði. Innleidd verða ákvæði um keðjuábyrgð í ólíkum atvinnugreinum, unnið gegn kynbundnum launamun, félagslegum undirboðum, mansali og kennitöluflakki og vinnueftirlit eflt.
- Stuðlað verður að bættu aðgengi landsmanna að öruggu húsnæði með eflingu stuðningskerfa, samræmdri stefnumörkun í uppbyggingu félagslegs húsnæðis og auknu gagnsæi á leigumarkaði. Þröskuldur ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn verður lækkaður. Skoðaðir verða möguleikar á að nýta lífeyrissparnað til þessa.
- Markviss skref verða tekin á kjörtímabilinu til afnáms verðtryggingar á lánum og samhliða hugað að mótvægisaðgerðum í þágu ungs fólks og tekjulágra.
- Frítekjumark atvinnutekna aldraðra verður hækkað í hundrað þúsund krónur strax um næstu áramót. Gjaldskrá vegna tannlækninga aldraðra og örorkulífeyrisþega verður uppfærð til að lækka kostnað þessara hópa. Samráð verður haft við heildarsamtök örorkulífeyrisþega um umbætur á almannatryggingakerfinu í þeirra þágu.
- Gerð verður úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna í íslensku samfélagi, tillögur til úrbóta settar fram og þeim fylgt eftir.
- Í loftslagsmálum verður stefnt að því að gera betur en Parísarsamkomulagið segir til um. Stefnt verður að kolefnishlutlausu Íslandi í síðasta lagi árið 2040 og 40% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030. Loftslagsráð verður sett á laggirnar og aðgerðaáætlun um samdrátt í losun verður tímasett og fjármögnuð.
- Þjóðarsjóður verður stofnaður utan um arð af auðlindum landsins og byrjað á orkuauðlindinni. Hlutverk sjóðsins verður að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum. Afmarkaður hluti ráðstöfunarfjár sjóðsins verður notaður til að efla nýsköpun og ráðast í átak í uppbyggingu hjúkrunarrýma.
- Ísland á að vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum. Lögð verður áhersla á nýsköpun og vöruþróun í landbúnaði til að stuðla að byggðafestu, auka verðmætasköpun og nýta tækifæri sem felast í áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi. Innleiddir verða sérstakir aðlögunarsamningar um nýja starfsemi til sveita.
- Tryggja þarf samkeppnishæfni sjávarútvegs, leggja þarf áfram áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu og efla hafrannsóknir. Veiðigjald á að tryggja þjóðinni réttlátan hlut í arðinum af auðlindinni ásamt því að endurspegla afkomu greinarinnar. Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein sem felur í sér tækifæri til atvinnuuppbyggingar en þarf að byggja upp með ýtrustu varúð í samræmi við ráðgjöf vísindamanna.
- Mörkuð verður langtímastefna í ferðaþjónustu í samvinnu við hagsmunaaðila. Stutt verður við rannsóknir í greininni og innviðauppbyggingu.
- Heildstæð nýsköpunarstefna fyrir Ísland verður mótuð í samstarfi við fulltrúa stjórnmálaflokka og í nánu samráði við atvinnulífið og vísindasamfélagið. Hún verður samþætt við framtíðarsýn í menntamálum, frá leikskóla til háskóla, í samráði við skólasamfélagið.
- Umhverfi fyrir rannsóknir og þróun á að vera framúrskarandi. Fyrirkomulag endurgreiðslna vegna rannsókna og þróunar verður endurskoðað í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum endurgreiðslum.
- Aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota verður framfylgt og hún fjármögnuð að fullu. Innviðir réttarvörslukerfisins verða efldir til að styrkja stöðu brotaþola innan þess og efla og samhæfa þjónustu við brotaþola á landsvísu, ekki síst í heilbrigðiskerfinu. Lagaumhverfi kynferðisbrota verður rýnt með það að markmiði að styrkja stöðu kærenda kynferðisbrota.
- Ísland á að vera í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks. Í því skyni verður sett metnaðarfull ný löggjöf um kynrænt sjálfræði.