Opinn fundur í Hveragerði 18. október
'}}

Opinn fundur í Hveragerði á morgun

Opinn fundur með Páli Magnússyni, oddvita Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, Unni Brá Konráðsdóttur, forseta Alþingis, Ásmundi Friðrikssyni, alþingismanni, Vilhjálmi Árnasyni, alþingismanni, Kristínu Traustadóttur, varaþingmanni, Hólmfríði Ernu Kjartansdóttur, varaþingmanni, Ísaki Erni Kristinssyni, varaþingmanni og Brynjólfi Magnússyni, varaþingmanni, miðvikudaginn 18. október nk. í Hveragerði.

Fundurinn fer fram í húsnæði Garðyrkjuskólans að Reykjum, 810 Hveragerði, kl. 20:00.

Frambjóðendur munu ræða um málefni Suðurkjördæmis og gefst gestum tækifæri til að ræða við þá um komandi alþingiskosningar og önnur mál.

Við hvetjum alla Hvergerðinga til að mæta á fundinn sem hefst eins og áður segir kl. 20:00.

Boðið verður upp á kaffi og grænmeti.

Fundurinn er opinn öllum.