Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjörinu í Reykjavík er hafin
'}}

Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 3. september 2016.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst í dag, þriðjudaginn 23. ágúst.

Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

Opið alla virka daga kl. 9 til 17.

Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík.

Kjósa skal 6 - 8 frambjóðendur, hvorki fleiri en 8 né færri en 6, ella ógildist kjörseðillinn. Kosið skal með því að setja tölustaf frá einum og upp í átta fyrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlegan framboðslista.

Nánari upplýsingar um prófkjörið verða birtar þegar nær dregur prófkjörsdeginum 3. september.

Yfirkjörstjórn Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík