Er aukin þung­lyndis­lyfja­notkun vanda­mál?
'}}

Berglind Ósk Guðmundsdóttir alþingismaður:

Merkja má verulega aukna áherslu á geðrækt og geðheilsu undanfarin ár og hafa stjórnvöld hér á landi gripið til ýmissa aðgerða til að bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Þrátt fyrir aukna áherslu sýna allar mælingar að vandinn er ekki að minnka, heldur þvert á móti.

Markmiðið með því að opna á þessa umræðu er meðal annars að minnka fordóma gagnvart geðröskunum en lélegt aðgengi að geðheilbrigðisúrræðum er gjarnan talið mega rekja til fordóma gagnvart geðröskunum.

Veruleg aukning þunglyndislyfjanotkunar

Það er því ómögulegt að rekja sístækkandi vandann einungis til þess að við erum orðin duglegri að ræða hann en fyrir þrjátíu árum. Bæði hafa ávísuðum dagskömmtum þunglyndislyfja til einstaklinga fjölgað sem og notendum lyfjanna. Embætti landlæknis hefur ítrekað varað við þróuninni, sem og alþjóða heilbrigðisstofnunin. Mesta aukningin á ávísunum kvíða- og þunglyndislyfja er hjá fólki yngri en 29 ára.

Þunglyndislyfjanotkun hefur ekki einungis aukist hjá börnum og unglingum og standa aðrir aldurshópar ekki utan þeirrar þróunar. Gríðarlegur munur er á þunglyndislyfjanotkun meðal kynja, en 111,7 dagsskammtar eru á hverja 1000 karla en 211,6 dagsskammtar á hverjar 1000 konur.

Sérstaða Íslands

Ísland er í sérstöðu þegar kemur að notkun þunglyndislyfja og hérlendis er hún mikil í alþjóðlegum samanburði. Í skýrslu OECD frá árinu 2019 kemur fram að árið 2017 var Ísland með lang mesta notkun þunglyndislyfja meðal annarra OECD ríkja.

Þessi sérstaða Íslands kallar á dýpri skoðun, þar sem rót vandans er greindur. Við sem samfélag ættum að kappkosta við að eyða út getgátum og svipta hulunni af því hvað það er sem orsakar aukna vanlíðan í samfélaginu. Ásamt því að skoða hvað veldur, verðum við að mæta aukinni þörf á geðheilbrigðisþjónustu með bættum meðferðarúrræðum og markvissari þjónustu byggða á gagnreyndum aðferðum. Ein forsenda þess að eftirspurnin og þörfin fyrir

þunglyndislyfjameðferð minnki í heilsugæslunni er aukið framboð þar á öðrum gagnreyndum meðferðarleiðum.

Rannsóknir sýna fram á að almenningur gerir sér grein fyrir því að aðrar meðferðarleiðir reynast oft betri gegn vægu þunglyndi en lyfjagjöf, og þá kemur fram hve stór hluti nefnir mikilvægi reglulegrar hreyfingar og viðtalsmeðferðar. Það er mikill munur á depurðareinkennum og alvarlegum heilsubrest og þess vegna er mikilvægt að vandi hvers og eins sé rétt greindur og viðeigandi meðferð eða úrræði valin.

Hvað er til ráða?

Heilbrigðisyfirvöld verða að leggja áherslu á fjölbreyttari úrræði og auðvelda aðgengið að þeim. Sala á þunglyndislyfjum mun að öllum líkindum halda áfram að aukast hér á landi nema aðgengi að öðrum meðferðarúrræðum aukist.

Lykillinn að bættri geðheilsu þjóðarinnar er ekki byggður á einni aðferð. Einni pillu, einum hreyfiseðli eða niðurgreiddum sálfræðitíma. Lykillinn að bættri geðheilbrigðisþjónustu líkist heldur meira lyklakippu húsvarðarins.

Greinin birtist á visir.is 2. mars 2023.