Þingmenn úr öllum flokkum styðja tillögu
'}}

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins:

Í þessari viku verður ár liðið frá því Rússland gerði innrás í Úkraínu, fullvalda og sjálfstætt ríki í Evrópu. Ár verður liðið frá því Rússar hófu stríð í Evrópu. Það var því viðeigandi að þingsályktunartillaga um að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu, eða Holodomor, sem hópmorð, hafi verið sett á dagskrá Alþingis í gær.

Hungursneyðin í Úkraínu stóð yfir frá 1932 til 1933 og var af völdum alræðisstjórnar Stalíns. Hún dró milljónir Úkraínumanna til dauða. Rússar hafa þó alla tíð neitað því að um hópmorð, stundum kallað þjóðarmorð, hafi verið að ræða. Það hafa þó fleiri en þeir neitað voðaverkum Stalíns í nafni kommúnisma. Jafnvel hér á Íslandi tóku kommúnistar og nokkrir aðrir til varna þegar fréttir bárust af hungursneyðinni á sínum tíma.

Flutningsmenn tillögunnar, sem koma úr öllum flokkum, vilja bregðast við ákalli Úkraínu um að ríki heimsins lýsi því yfir að hungursneyðin hafi verið hópmorð, en fjölmörg ríki hafa þegar brugðist við ákallinu. Um það er líka breið samstaða hér á Alþingi. Með þessu færi hungursneyðin á lista yfir þá ómannúðlegu alþjóðaglæpi alræðiskerfa sem útrýmdu milljónum mannslífa á fyrri hluta 20. aldar.

Fólk víðs vegar um Úkraínu varð fyrir miklum áhrifum af hungri og kúgun alræðisstjórnar Stalíns. Örvænting fólks var slík að fólk greip til mannáts og hlutu fjölmargir dóm fyrir. Hungursneyðin var bein afleiðing þvingaðrar stefnu Sovétríkjanna um samyrkjubúskap. Auk þess var svelti kerfisbundið beitt sem refsingu, m.a. ef bændur gátu ekki uppfyllt tilskilið afhendingarmagn afurða. Svæðin sem urðu verst úti í þessum aðgerðum voru girt af til að koma í veg fyrir að hungraðir íbúar gætu flúið á milli svæða og til að koma í veg fyrir flutning matvæla til svæðanna. Markmið sovéskra stjórnvalda með sveltinu var enn fremur að bæla niður úkraínska þjóðarvitund, að þvinga Úkraínumenn til undirgefni. Þeir voru því vísvitandi sveltir í pólitískum tilgangi.

Þessi þjóðarharmleikur Úkraínumanna varð milljónum manna að bana. Þrátt fyrir afneitun Rússa, uppfyllir hungursneyðin öll skilyrði til að vera skilgreind sem hópmorð.

Það er mat okkar þingmanna sem stöndum að tillögunni að mikilvægt sé að senda skýr skilaboð um þessa hörmulegu atburði í mannkynssögunni og vekja á þeim athygli til að koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig. Slík skilaboð um voðaverk fyrri tíma sem mega ekki gleymast geta styrkt viðleitni alþjóðasamfélagsins til að tryggja framgang og vernd grundvallarmannréttinda og frelsis um allan heim.

Og auðvitað er innrás Rússlands í Úkraínu og stríðsglæpir rússneska hersins alveg sérstakt tilefni til að samþykkja þetta núna. Sporin hræða svo sannarlega.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. febrúar 2023.