Til fundar við frambjóðendur í Reykjavík

Frambjóðendakynning verður á vegum Varðar, fulltrúaráðsins í Reykjavík, fimmtudaginn 27. maí kl. 17:00, í Valhöll. Fundinum verður streymt beint á heimasíðu og Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins.

Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að hver frambjóðandi fær 4 mínútur til að kynna sig, en alls gefa 13 einstaklingar kost á sér. Að því loknu verður gestum fundarins boðið að spyrja frambjóðendur spurninga.

Allir eru hjartanlega velkomnir í Valhöll á meðan húsrúm leyfir en hámark 150 manns komast að í ljósi samkomutakmarkana.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna hér.