„Þegar þetta varð partur af mínu lífi fékk ég áhuga á raunveruleika fólks í þessu kerfi almennt. Eftir að hafa kynnst af eigin raun að hafa ekki verið nógu meðvituð um allar staðreyndirnar velti ég fyrir mér afhverju ekki væri meira rætt um þær, hver væri til dæmis beinhröð tölfræði í kringum frjósemi kvenna. Er það nógu mikið rætt? Maður veit að frjósemi minnkar með aldrinum en hversu mikið minnkar hún? Hverjir eru möguleikarnir? Sérstaklega þegar maður setur það í samhengi við að við erum bara ennþá börn nánast þegar við vitum allt um getnaðarvarnir og þó að það sé auðvitað jákvætt er samanburðurinn áhugaverður,“ segir Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður, lögfræðingur og aðstoðarmaður ráðherra sem er gestur Ingvars P. Guðbjörnssonar í nýjasta þætti af Pólitíkinni. Þáttinn má nálgast hér.
Í þættinum ræða þau um tæknifrjóvganir, reynslu Hildar af kerfinu hérlendis, en hún nýtur nú aðstoðar við að reyna að eignast barn. Hildur segir að nokkur atriði megi endurskoða og varpar fram áhugaverðum spurningum.
Í grein í Morgunblaðinu 26. apríl skrifar hún einnig: „Kerfið í kringum tæknifrjóvganir hefur batnað að miklum mun síðustu ár. Ég hugsa með mikilli hlýju og samúðar til allra þeirra sem hér á árum áður stóðu í eflaust mjög sársaukafullri baráttu án þeirrar þekkingar, tækni og umræðu sem við búum við nú. En þótt kerfið hafi tekið stakkaskiptum má enn endurskoða það svo að ríkið sé frekar til aðstoðar en trafala gagnvart fólki sem langar einfaldlega til að skapa líf og hlúa að því.”