Ekkert samtal um samningsleysi
'}}

Vilhjálmur Árnason, alþingismaður:

Samningagerð Sjúkratrygginga Íslands við hina ýmsu aðila í heilbrigðisþjónustu var rædd í Velferðarnefnd Alþingis í vikunni. Fyrst komu talmeinafræðingar og sjúkraþjálfarar og lýstu raunum sínum í samskiptum við SÍ. Því næst komu bæjarstjórar, Akureyrar, Hafnar í Hornafirði og Vestmannaeyja og fóru yfir það ófremdarástand sem komið er upp varðandi skil þeirra á rekstri hjúkrunarheimila eftir að samningum þeirra var ekki fylgt eftir. Þessu til viðbótar, þekkjum við afleiðingar samningsleysis við sjálfstætt starfandi aðila vegna liðskiptaaðgerða svo dæmi sé tekið.

Hvað skýrir þá pattstöðu sem upp er komin? Af hverju er ekkert samtal um samningsleysið? Á þetta að vera svona áfram? Ég vil leyfa mér að minna á að Sjúkratryggingar Íslands hafa beinlínis það hlutverk samkvæmt lögum að kaupa heilbrigðisþjónustu til að tryggja aðgengi óháð efnahag, skila hagræði og tryggja gæði. Í greinargerð með þessum sömu lögum segir að kostnaðargreina eigi heilbrigðisþjónustuna og taka upp „blandaða fjármögnun á heilbrigðisstofnunum þar sem fjármagn fylgir sjúklingum. Þannig fái heilbrigðisstofnanir fjármagn í samræmi við þörf og fjölda verka. Skapað verði svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustusamningum, en jafnframt tryggt að allir hafi að henni jafnan aðgang, óháð efnahag”.

Býsna skýrt. Hvert er þá vandamálið? Umræddar heilbrigðisstéttir og rekstraraðilar í heilbrigðisþjónustu kvarta undan samtalsleysi og að þurfa að sæta afarkostum við samningagerð hjá SÍ. Þá kemur einnig fram í máli þeirra að engar greiningar um kostnað, hagræði eða ávinning notanda hafa verið gerðar við ný skilyrði í samningum. Greiningardeild SÍ hefur verið lögð niður. Þau segja að reglugerðir á grundvelli rammasamninga séu uppfærðar án samráðs. Þetta hefur skapað mikið óhagræði, aukið á álag og kostnað annarsstaðar í heilbrigðiskerfinu. Flestir kannast rekstraraðilar heilbrigðisþjónustu við að SÍ vísi á heilbrigðisráðuneytið og öfugt, þ.e. að ráðuneytið vísi á SÍ.

Þetta er að mínu mati óboðleg staða. Þetta var aldrei markmiðið með stofnun Sjúkratrygginga Íslands, að vera flöskuháls og framfarahemill í þróun heilbrigðisþjónustunnar. Svona eru skattpeningar okkar alls ekki best nýttir og þetta er jafnframt alls ekki í samræmi við væntingar notenda heilbrigðisþjónustunnar. Markmiðið með SÍ var alltaf að sjá til þess að sjúkratryggðum stæðu til boða fjölbreytt úrræði sem uppfylla þarfir þeirra og tryggja gæði á sem hagkvæmasta hátt.

Þetta er kjarni málsins og hefur ekkert breyst. Við þurfum áfram að hafa lausnir í okkar heilbrigðisþjónustu sem tryggja bestu þjónustuna á sem öruggastan og hagkvæmasta máta. Til þess voru Sjúkratryggingar Íslands stofnaðar og þeim ber einfaldlega skylda til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Fyrsta skrefið er að hefja samtalið.

Greinin birtist á visir.is 25. febrúar 2021.