Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi:
Á síðustu mánuðum hafa orðið miklar breytingar á okkar samfélagi. Við erum nánast öll í stöðugri aðlögun, nýjar reglur og ný viðmið sem taka stöðugum breytingum. Daglegu lífi okkar allra hefur verið umturnað. Vissulega hefur ástandið mismunandi áhrif á okkur þar sem sóttvarnaraðgerðir snerta okkur mis mikið. Það fagfólk á sviði geðheilbrigðismála sem ég hef talað við hefur áhyggjur af afleiðingum faraldursins sem nú geisar hvað varðar geðheilbrigði. Fagfólk talar um að ástandið fari versnandi eftir því sem faraldurinn dregst á langinn. Það er því mikilvægt að við áttum okkur á því hver sé raunveruleg staða í geðheilbrigðismálum til þess að hægt sé að bregðast við sem fyrst ef talin er vera þörf á því.
Tillaga um úttekt á stöðu geðheilbrigðismála
Í borgarstjórn í dag mun ég fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík flytja tillögu um að gerð verði úttekt á stöðu geðheilbrigðismála hjá Reykjavíkurborg vegna kórónuveirunnar. Í kjölfarið verði unnin aðgerðaáætlun sem fylgt verði eftir. Fulltrúum velferðarsviðs, skóla- og frístundasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs verði falin gerð úttektar annars vegar og aðgerðaáætlunar hins vegar enda eru það þau svið Reykjavíkurborgar sem málið snertir helst. Vinnan verði jafnframt unnin í samstarfi við fagaðila á sviði geðheilbrigðismála ásamt fulltrúum frá samtökum sem sinna geðheilbrigðismálum. Lagt er til að vinnu við greiningu og aðgerðaáætlun ljúki eigi síðar en í árslok 2020 og niðurstöðunni verði skilað til borgarráðs. Aðgerðaáætlun komi til framkvæmda í ársbyrjun 2021.
Aldrei mikilvægara að huga að geðheilbrigði
Sjaldan eða aldrei hefur það verið mikilvægar en núna að huga að geðheilbrigðismálum. Þeir hópar sem hafa orðið fyrir hvað mestum breytingum vegna sóttvarnaraðgerða þarf að skoða sérstaklega. Unglingarnir okkar stóðu ekki vel fyrir komu kórónuveirunnar og því miður hefur orðið gríðarleg röskun á þeirra lífi. Það er eflaust ekki auðvelt að vera ung manneskja og alast upp á tímum kórónuveirunnar þar sem öll félagsleg samskipti eru allt önnur en við eigum að venjast. Unglingar hafa sjálfir verið duglegir að kalla eftir breytingum og aukinni fræðslu um geðheilbrigði. Því miður þá hefur ekki verið orðið við þeim óskum.
Reykjavíkurborg verður leiðandi
Það er þekkt að þegar að stormurinn geisar að þá hörkum við hann oft af okkur og síðan koma afleiðingarnar í ljós. Það er því mikilvægt að huga að geðheilbrigðismálum núna og beina athygli okkar að forvörnum og heilsueflingu í ríkara mæli. Reykjavíkurborg á þar að taka forystu með því að marka sér skýra stefnumótun og huga ávalt að því að allir íbúar sveitarfélagsins setji geðheilsuna í forgang. Það er eitt af mikilvægustu verkefnum sem þarf að vinna núna á tímum kórónuveirufaraldursins, hlúum mun betur að geðheilbrigðismálum.
Greinin birtist á visir.is 3. nóvember 2020.