Smá lán
'}}

Vilhjálmur Bjarnason varaþingmaður:

Viðskipti eru fylgifiskur mannlegra samskipta. Í slíkum samskiptum eru settar reglur. Þannig eru samskiptareglur skráðar í eldri hluta Svörtu bókarinnar, þeim er kenndur er við Móses. Þar koma fyrir hugtök eins og okur og vextir. Okur kemur aðeins fram í einu samhengi, það er þegar fjallað er um neyð og bágindi.

Neyð og bágindi í löggjöf

Nútímamaðurinn hefur gengið í smiðju hjá Móses og fært í lagabálka ákvæði um neyð og bágindi í viðskiptum.

Þannig taka samningalög frá 1936 á neyð og bágindum;

  • Hafi nokkur maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða léttúð eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér hagsmuna eða áskilja sér þá þannig að bersýnilegur mismunur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því er fyrir þá kom eða skyldi koma, eða hagsmunir þessir skyldu veittir án endurgjalds, skal gerningur sá, er þannig er til kominn, ógildur gagnvart þeim aðila er á var hallað með honum.

Hegningarlög taka á neyð og bágindum með svipuðum hætti;

  • Hafi maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér með löggerningi hagsmuna eða áskilja sér þá, þannig að bersýnilegur munur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því, sem fyrir þá koma eða skyldi koma, eða hagsmunir þessir skyldu veittir án endurgjalds, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.

Hagfræði smá lána

Það er ávallt ástæða til þess að íhuga hagfræði að baki viðskiptum. Eðlileg viðskipti eru til að bæta hag þeirra sem aðild eiga að viðskiptum. Neyð og bágindi, sem leiða til óeðlilegs endurgjalds koma í veg fyrir að einhver njóti ekki afraksturs að viðskiptunum.

Einfalt er að fylgja því eftir hvort fyrirtæki, sem starfa samkvæmt lögum, notfæra sér neyð og bágindi í lánaviðskiptum. Slík fjármálafyrirtæki eru eftirlitsskyld, lúta eftirliti fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Neytendastofa hefur einnig eftirlitshlutverk.

Smá lán eru í raun hrakval. Smálánafyrirtæki eru að velja lakasta hóp viðskiptavina með mikla tapáhættu og mega því gera ráð fyrir miklum afföllum í útlánum.

Til að smá lán þrífist þarf lánveitanda og lántaka. Okurlán á Íslandi, þar sem skáldin ortu;

Þá verður oss ljóst að framar ei frestur gefst né færi á að ráðstafa nokkru betur. Því alls sem lífið lánaði dauðinn krefstí líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur.

voru alls ekki ný af nálinni. Metúsalem og Pétur voru ekki persónur í Svörtu bókinni. Þeir voru lifandi menn í Reykjavík, sem stunduðu einkabankastarfsemi með víxlum. Viðskipti með víxla byggðust á löggjöf frá 1933. Fjölmargir stunduðu lánaviðskipti af þessu tagi á undan Metúsalem og Pétri. Og aðrir eftir þeirra daga.

Smálánafyrirtækin eru núna byggð á tækni. Snjallsími er nauðsynlegur og aðgangur að banka. Kröfur smálánafyrirtækja koma fram í heimabanka lántaka. Því þarf íslenskan banka til að vinna óhæfuverkin fyrir smálánafyrirtækin. Sparisjóður Strandamanna gegnir því hlutverki, enda viðskiptamenn að sunnan ávallt til fjár.

Þau smá lán, sem verst er við að eiga, eru þar sem lántaki heimilar lánveitanda að skuldfæra kröfur sem lent hafa í kröfurækt hjá lögsmámennum. Bankar eða greiðslukortafyrirtæki sem heimila slíka skuldfærslu eru á vafasamri braut. Lögmaður sem einungis stundar innheimtu er ómerkur lögmaður.

Réttarfar smá lána

Eftir nákvæma rannsókn á dómasöfnum héraðsdómstóla kemur í ljós að ekki hefur gengið einn einasti dómur um réttmæti kröfuræktar í smá lánum. Það er í raun ekki undrunarefni þar sem lagagrundvöllur kröfunnar er mjög veikur. Ef til innheimtu kemur er sennilega aðeins hinn upphaflegi höfuðstóll innheimtanlegur. Það er svo annað mál hvort lántaki er borgunarmaður, jafnvel fyrir þeirri kröfu. Réttarfarskostnaður af óinnheimtanlegri kröfu lendir óhjákvæmilega á smálánafyrirtækinu og lögsmámenninu, sem leggur stund á svo göfuga innheimtu.

Það að færa vanskil þessara krafna í miðlæga vanskilaskrá hjá Creditinfo er mjög vafasamt þar sem ekki hefur verið dæmt um lögmæti slíkra krafna. Það að Creditinfo taki við kröfum, sem lýstar eru í vanskilum frá hinum og þessum er meira lagi vafasamt.

Það er einnig áhyggjuefni og enn vafasamara ef Creditinfo hefur starfsleyfi á grundvelli löggjafar sem er úr gildi fallin. Hvar er Persónuvernd nú?

Frumvarp til laga umstarfsemi smálánafyrirtækja

Gjörvöll Samfylkingin hefur lagt fram frumvarp til laga „um starfsemi smálánafyrirtækja“. Lagasetning af þessu tagi væri sennilega hið versta vopn til varnar þeim sem lenda í þeirri ógæfu að lenda í klóm smálánafyrirtækja. Og tilraun til góðverka til þess eins að vernda óhæfuverk.

Á það hefur verið bent að lagalegur grunnur þessarar lánastarfsemi er mjög veikur. Smálánafyrirtæki virðast ekki innheimta með lögsókn og lýsa vart kröfum í þrotabú. Umboðsmaður skuldara virðist aðeins taka tillit til höfuðstóls smálána.

Löggjöf eflir aðeins þessa tegund lánastarfsemi, smálánafyrirtækjum til góða.

 Góðmennska og hjálpsemi

Vissulega blundar góðmennska í hjörtum aðstandenda þeirra, sem hafa tekið smá lán. Góðverk auka aðeins heilabrot og leiðindi. Góðverk við að aðstoða lántakendur smá lána þjóna ekki lántakendum, heldur aðeins smálánafyrirtækjum og lögsmámennum. Slíkur kristilegur kærleiki frelsar enga sál.

Til þess að smálánafyrirtæki þrífist þarf góðverk og hjálpsemi aðstandenda lántaka. Þau góðverk viðhalda starfsemi smálánafyrirtækjanna. Góðverk alþingismanna, að banna smálánastarfsemi, er álíka gagnleg og áfengisbann snemma á síðustu öld. Og álíka árangursríkt og yfirlýsing um fíkniefnalaust Ísland árið 2000.

Mér finnst tvö fíkniefni góð. Annað er áfengi, en það á ekki vel við mig, og hitt er endorfín, en það framleiði ég sjálfur!

Hvað segir Esikel?

„Eignist þessi maður ofbeldishneigðan son sem úthellir blóði og fremur eitthvað af því sem faðir hans lét ógert, heldur fórnarmáltíð á fjöllum og svívirðir eiginkonu náunga síns, beitir fátæka og hjálparvana ofríki, fremur rán, skilar skuldunauti ekki veði sínu, hefur augu sín upp til skurðgoða, fremur viðurstyggilegt athæfi, veitir lán gegn vöxtum og stundar okur, á hann að halda lífi? Nei, hann á ekki að halda lífi. Þar sem hann hefur framið alla þessa svívirðu skal hann deyja. Blóð hans skal koma yfir höfuð hans.“

Örlög lögsmámenna

Það ættu að verða örlög lögsmámenna, sem notfæra sér neyð og bágindi annarra við innheimtu smálána, að fara í hið neðra og brenna þar í vítislogum á teinum og rotna svo í mógröf, til efsta dags, og ná aldrei augliti guðs.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 17. júlí 2020.