„Iðnaðarmaðurinn verður ekki leystur frá störfum með vélmönnum“
'}}

„Hér er ekki um neinn framtíðarvanda að ræða, heldur raunverulegan vanda sem við búum við í dag og bitnar á þeim sem síst skyldi. Að mínu mati þarf að bregðast við með almennilegum hætti,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og ritari Sjálfstæðisflokksins í sérstakri umræðu á Alþingi í dag um stöðu iðnnáms. Til andsvara var mennta- og menningarmálaráðherra.

Áslaug Arna spurði ráðherra hvort hún væri tilbúin að gera starfs-, iðn- og verknámi jafn hátt undir höfði og stúdentsprófi?

„Að bæta iðn- og tæknimenntun hefur, því miður, orðið að frasa sem ekki hefur verið fylgt eftir með verkum.  Ísland á undir að menntakerfið sé framúrskarandi, þessi umræða hefur of oft verið tekin án raunverulegra breytinga,“ sagði Áslaug Arna í ræðu sinni.

Hún sagði að menntun og mannauður væru grundvallarforsenda góðra lífskjara.

„Skortur á iðnmenntuðu fólki er gríðarlegur, hátt í 80% meðlima í samtökum iðnaðarins vantar iðnaðarmenn svo dæmi sé tekið, eftirspurn eftir starfsmönnum með grunn í iðn- og verkgreinum hefur aukist með hverju ári. Á sama tíma og iðnaður skapar fjórðung landsframleiðslunnar sjáum við aðeins 16% nýnema skrá sig í iðn-og verknám, á meðan 70% skrá sig í bóknám til stúdentsprófs,“ sagði þingmaðurinn.

Alltaf verður þörf fyrir færni og þekkingu

„Atvinnulífið hefur þróast hratt og sú þróun mun halda áfram. Menntakerfið og áherslur þess mega ekki sitja eftir. Þrátt fyrir stafræna byltingu og frekari byltingu í störfum í framtíðinni verður áfram mikil þörf fyrir iðn- og tæknimenntað fólk. Störfin munu sum hver breytast, en alltaf verður þörf fyrir færni, þekkingu og aðra þætti en hefðbundið bókvit. Iðnaðarmaðurinn verður ekki leystur frá störfum með vélmönnum, en mun þurfa að breytast í takt við tímann,“ sagði Áslaug Arna.

Hún sagði stærsta verkefnið að fjölga nemum í grunnnámi iðngreina og að einnig þurfi að huga að því að þeir sem velji þessa leið eigi möguleika á aukinni menntun og einnig að þeim séu ekki settar of þröngar skorður.

„Að fjölga háskólamenntuðum með annan bakgrunn eins og iðn/tæknimenntun mun reynast dýrmætt fyrir samfélagið í heild sinni,“ sagði þingmaðurinn og bætti við: „Ég hef lagt fram frumvarp með breytingum á lögum um háskóla og opinbera háskóla með því markmiði að skýrlega verði kveðið á í lögum að iðn-, verk- og starfsnámi sé gert jafn hátt undir höfði og bóknámi. Með því er verið að opna dyr nemenda að háskólanámi. Það eru mörg dæmi þess að aðilar sem lokið hafa iðnnámi vilji auka við sig menntun,“ sagði Áslaug Arna.

List- og verkgreinum ekki nægilega vel sinnt í grunnskólunum

Næst gerði hún grunnskólanám að umfjöllunarefni sínu og sagði að í grunnskólunum væri okkur vandi á höndum.

„Þar er list- og verkgreinum alls alls ekki nægjanlega vel sinnt, þrátt fyrir nokkuð skýrt og vægt lagaákvæði þar um um lágmarksviðmið. Við munum ekki kenna þessar greinar á bókina, ekki frekar en við getum kennt krökkum að synda með bókinni. Grunnskólarnir standa sig margir hverjir svo illa að t.d. er 80% skóla í Reykjavík sem virða ekki þessi viðmið í 5.-7. bekk. Hvernig eigum við að auka áhuga á einhverju sem börn þekkja einfaldlega ekki?“ spurði þingmaðurinn.

Umræðuna í heild sinni má finna hér.