Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi Akureyri laugardaginn 17. september kl. 11:00. Rætt um kosningabaráttuna og verkefnin framundan í pólitíkinni.
Framsögu flytja Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, og Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúi, sem skipa efstu sætin á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 29. október nk.
Allir velkomnir - heitt á könnunni.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis