
Ég býð mig fram til að leggja mitt af mörkum svo Reykjanesbær verði samfélag þar sem allir fá að láta ljós sitt skína. Bær sem setur fjölskylduna í fyrsta sæti, með öruggt aðgengi að leikskólum, sterku íþróttalífi og bestu grunnskólum landsins.
Ég er fjölskyldumaður og veit af eigin reynslu hversu mikið það skiptir máli að daglegt líf gangi upp, að þjónustan virki og að börnin okkar fái öruggt og uppbyggilegt umhverfi til að alast upp í.
Ég hef starfað í lögreglunni á Suðurnesjum og rekið eigið fyrirtæki. Undanfarin 12 ár hef ég verið þingmaður Suðurnesjamanna og síðan 2022 gegnt embætti ritara Sjálfstæðisflokksins.
Stefnan mín er skýr: að koma Sjálfstæðisflokknum aftur í meirihluta, lækka skatta, bæta rekstur bæjarins og tala svæðið upp sem fyrsta valkost barnafjölskyldna og fyrirtækja. Við byggjum velferðina á öflugu atvinnulífi og Reykjanesbær á að vera staður þar sem fyrirtæki vilja fjárfesta og skapa störf.
Ég mun leggja allt mitt afl í að Reykjanesbær verði samfélag þar sem fólk finnur til stolts, öryggis og tækifæra. Samfélag sem tekur jafn hlýlega á móti börnum og barnabörnum okkar allra, og tók á móti okkur Sillu og strákunum þegar við fluttum í Reykjanesbæ.
