Símaviðtalstímar kjörinna fulltrúa
Ásmundur Friðriksson alþingismaður og Björn Gíslason borgarfulltrúi bjóða upp á símaviðtalstíma, föstudaginn 23. október, milli kl. 12:00 og 13:00.
Bóka þarf símaviðtal fyrirfram með því að senda tölvupóst, með nafni og símanúmeri, á netfangið vidtalstimar@xd.is eða með því að hafa samband við Sjálfstæðisflokkinn í síma 515-1700. Hvert símaviðtal getur verið allt að 15 mínútur að lengd.
Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða með reglulega símaviðtalstíma á komandi vikum.
Dagskrá símaviðtalstíma til áramóta:
23. október - Ásmundur Friðriksson og Björn Gíslason
30. október – Vilhjálmur Árnason og Marta Guðjónsdóttir
6. nóvember – Sigríður Á. Andersen og Eyþór Arnalds
13. nóvember – Birgir Ármannsson og Hildur Björnsdóttir
20. nóvember - Bryndís Haraldsdóttir og Katrín Atladóttir
27. nóvember - Haraldur Benediktsson og Egill Þór Jónsson
Kveðja, starfsfólk Sjálfstæðisflokksins.