Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir gestur á laugardagsfundi Varðar

📅 15. apríl 2023 0:00

'}}
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er gestur laugardagsfundar Varðar laugardaginn 15. apríl 2023 kl. 10:30 í Valhöll, Háaleitisbraut

Á fundinum verður til umræðu fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar sem verið hefur í deiglunni undanfarin misseri, en sem kunnugt er hefur fjárhagsstaða borgarinnar verið í ólagi um árabil. Þá er Reykjavík í hópi þeirra sveitarfélaga sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi athugasemdir í febrúar sl. vegna fjárhagsstöðu.

Heitt á könnunni!

Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, Ártúns- og Norðlingaholti

Laugardagsfundir Varðar eru öllum opnir og eru haldnir á vegum Varðar og sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Að þessu sinni skipuleggur Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, Ártúns- og Norðlingaholti fundinn.