Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík boðar til opins fundar með borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins miðvikudagskvöldið 27. febrúar næstkomandi.
Fundurinn fer fram í Valhöll og hefst klukkan 20:00.
Í upphafi fundar munu borgarfulltrúar flokksins ganga á milli borða í sal og eiga einlæg samtöl við fundargesti. Í kjölfarið taka síðan við pallborðsumræður þar sem borgarfulltrúar munu sitja fyrir svörum.
Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni.
Með kveðju,
stjórn Varðar.