Guðlaugur Þór á laugardagsfundi

📅 23. nóvember 2024 10:30

'}}
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verður gestur Félags eldri Sjálfstæðismanna í Reykjavík á laugardagsfundi í Valhöll Háleitisbraut 1, 23. nóvember kl. 10:30.
Guðlaugur Þór mun meðal annars fara yfir stefnu Sjálfstæðisflokksins í samgöngumálum. Til umræðu verða Sundagöng og vegtenging við norðurhluta Reykjavíkurborgar auk annarra þeirra mála sem brenna munu á fundarmönnum.
Heitt á könnunni.
Félag eldri sjálfstæðismanna í Reykjavík