Aðalfundur félags Sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi

Aðalfundur Félags Sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi verður haldinn miðvikudaginn 31. ágúst 2022 kl. 17:30 í félagsheimili Sjálfstæðismanna við Álfabakka 14a (Mjódd).

Dagskrá fundarins er:

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  2. Reikningsskil.
  3. Skýrslur nefnda.
  4. Kjör stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna reikningsskila.
  5. Kjör fulltrúa í Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
  6. Tillögur um lagabreytingar.
  7. Önnur mál.

Framboð skulu hafa borist á netfangið jonb@xd.is fyrir klukkan 17:30 sunnudaginn 28. ágúst 2022.

Stjórn Félags Sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi