Golfmót LS 

Árlegt golfmót Landssambands sjálfstæðiskvenna fer fram fimmtudaginn 26. ágúst á Hamarsvelli í Borgarnesi. Skráning á mótið fer fram á golfbox, og með greiðslu þátttökugjalds til Landssambands sjálfstæðiskvenna. Leikið verður í tveimur flokkum, forgjöf 0-24,9 og forgjöf 25-36.

Við hvetjum ykkur til að skrá og greiða þátttökugjald sem fyrst þar sem góð þátttaka hefur verið undanfarin ár og færri hafa komist að en hafa viljað. Skráningu lýkur rétt fyrir miðnætti þann 23. ágúst.

Til þess að skráning sé gild þarf að greiða mótsgjald að upphæð 13.000 kr. inn á reikning Landssambands sjálfstæðisvenna og tekur skráning mið af greiðsluröð. Reikningsnúmer: 0334-26-002150 kt: 571078-0159. Innifalið í mótsgjaldi er vallargjald, léttur kvöldverður og rútuferð. Ef forföll verða eftir að skráningu lýkur verður 50% mótsgjald endurgreitt. Tekið verður verið nöfnum á biðlista á ls@xd.is eftir að skráningu er lokið.

Fyrirkomulag
Rútuferð verður frá Valhöll, Háaleitisbraut á fimmtudagsmorgun og er mæting klukkan 10.00. Mótið hefst kl. 13.00 og verður ræst á öllum teigum. Leikið verður í tveimur flokkum, forgjöf 0-24,9 og fjörgjöf 25-36, og eru glæsilegir vinningar í boði í báðum flokkum auk verðlauna fyrir höggleik, nándarverðlaun, Sjálfstæðissleggjuna og Fugladrottningu LS.

Að loknu spili verður komið saman á Hótel Hamri þar sem verðlaunaaafhending fer fram og léttur kvöldverður framreiddur. Sérstakur heiðursgestur kvöldsins er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra. Rútuferðir verða heim að dagskrá lokinni.

Í ár býður Hótel Hamar upp á gistingu á góðum kjörum, hótelherbergi ásamt morgunverði á 19.900 kr. Til að bóka herbergi þarf að hafa samband við Hótel Hamar beint. Athugið að skráning á golfmót er í gegnum mitt golf og bókun á hótelherbergi tryggir ekki skráningu á mót.