Almennar áskoranir og markmið
Velferðarmál eru umfangsmesti útgjaldaflokkur sveitarfélaga og ríkissjóðs en jafnframt einn sá mikilvægasti fyrir lífsgæði almennings í landinu. Áskoranir og tækifæri eru fjölmörg á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu og mikilvægt að bæta þjónustu samhliða aukinni skilvirkni og hagkvæmni í rekstri.
Bæta þarf heilbrigðisþjónustu bæði í almennri grunnstarfsemi svo sem umönnun sem og hjá sérhæfðara heilbrigðisstarfsfólki. Veruleg tækifæri eru til úrbóta í samstarfi og samþættingu milli ríkis og sveitarfélaga svo og milli einstakra þjónustueininga ríkisrekstrar og sjálfstætt starfandi fyrirtækja og heilbrigðisstarfsmanna. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að við skipulag heilbrigðisþjónustu sé réttur einstaklinga til þjónustu tryggður. Efla þarf heimaþjónustu en án hennar kemur fólk sífellt veikara inn á hjúkrunarheimili og sjúkrahús.
Bæta þarf menntun og fjölga nemendum í heilbrigðisgreinum og fylgja eftir möguleikum á t.d. námslínum í einfaldara sjúkraliða- og hjúkrunarfræðinám. Starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks þarf að vera áhugavert og eftirsóknarvert.
Með nýrri heilbrigðis- og velferðarstefnu má auka gæði og skilvirkni þjónustunnar. Sú stefna sem unnin var árið 2019 er að takmörkuðu leyti í takt við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Leggja þarf aukna áherslu á nýsköpun og fjölbreytt rekstrarform með sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsemi sem getur létt verulega undir með opinberum heilbrigðisstofnunum, stytt biðlista og aukið hagkvæmni í rekstri.
Áskoranir og tækifæri felast í að þjóðin er að eldast. Heilsufar batnar og lengja má starfsaldur og gera starfslok sveigjanlegri. Frítekjumark verði endurskoðað og jaðaráhrif tekjutenginga og tekjuskatts. Það mun efla hagvöxt, bæta velferð og hafa ýmis jákvæð áhrif.
Meginverkefni og áhersluatriði á sviði velferðarmála.
Efla þarf forvarnir og heilsueflingu í félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og skólum. Stuðla ber að lýðheilsuátaki á landsvísu með mælanlegum markmiðum í samvinnu almennings, heilbrigðiskerfisins og frjálsra félagasamtaka. Hvetja þarf almenning og frjáls félagasamtök að koma á teymisvinnu milli félags- og heilbrigðiskerfis til að tryggja aðgengi að stuðningsúrræðum fyrir alla aldurshópa. Leggja ber áherslu á snemmtæka íhlutun frá unga aldri og koma í veg fyrir lífsstílstengda sjúkdóma, örorku og jafnvel sjálfsvíg.
Móta stefnu í sjúkrahúsþjónustu landsmanna. Landspítali (LSH) þarf sem þjóðarsjúkrahús að geta sinnt sínu skilgreinda hlutverki á sviði lækninga, rannsókna og háskólakennslu. LSH hafi í forgangi stærri og flóknari aðgerðir og meðferð, en verði auk þess leiðandi í viðbrögðum við farsóttum, bráðaþjónustu og öryggismálum. Til að LSH geti gegnt þessu forystuhlutverki þarf að gera honum kleift að draga úr annarri almennri sjúkrahúsþjónustu m.a. með því að efla samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir, sérfræðilækna og fyrirtæki. Stytta þarf þann tíma sem sjúklingar dvelja að óþörfu á bráða- og aðgerðardeildum spítalans og efla þá þjónustu sem tekur við og leysa þar með stóran hluta fráflæðivandans.
Þrátt fyrir uppbyggingu LSH við Hringbraut þarf samtímis að huga að framtíðaraðstöðu fyrir aðra sjúkrahúsþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Farið verði í greiningu á framtíðarþörf og staðarvali fyrir slíka sjúkrahúsþjónustu og byggingu í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki. Eðlilegt er að slíkt sjúkrahús, verði ekki ríkisrekið heldur rekið með þjónustutengdri fjármögnun frá hinu opinbera, á sama hátt og háskólar og ýmsir aðrir þjónustuaðilar fá fjárframlög frá ríkinu þótt þeir séu ekki ríkisreknir.
Efla þarf fjölbreyttara rekstrarform heilbrigðisþjónustu. Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að í landinu sé öflugur hópur sjálfstætt starfandi sérfræðilækna, annars heilbrigðisstarfsfólks og heilbrigðisfyrirtækja. Nýta þarf betur möguleika á fjölbreyttum rekstrarformum innan heilbrigðisþjónustunnar með áherslu á skýrar gæðakröfur og skilvirkni samhliða jafnræði í greiðslum óháð rekstrarformi. Flýta þarf innleiðingu gagnsæs greiðslukerfis (DRG kerfi) vegna fjármögnunar sjúkrahússtarfsemi. Halda skal áfram að bjóða út starfsemi heilsugæslunnar og annarrar heilbrigðisþjónustu til að auka hagkvæmni og skilvirkni.
Sjúkratryggingar Íslands. Ein mikilvægasta stofnun á sviði heilbrigðismála er Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) sem sér um innkaup heilbrigðisþjónustu og samninga við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir. Úrbóta er þörf á ýmsum sviðum svo sem varðandi samningagerð og kaup á þjónustu, gjaldskrárgerð og eftirlit. Ekki hefur verið gætt að samræmingu og sanngirni varðandi gjaldskrár og eðlilegum hækkunum og endurskoðun samninga hefur ekki verið fylgt eftir svo sem tannréttingastyrkir barna.
Þjónusta óháð búsetu. Stórbæta þarf þjónustu við íbúa á landsbyggðinni með bættu aðgengi að endurhæfingu, almennri heilbrigðisþjónustu og -starfsfólki, sérstaklega sérfræðilæknum og með fjarþjónustu. Auk þess þarf að bæta tækjabúnað heilsugæslu og sjúkrahúsa til bráðaþjónustu út um land svo sem með bráðagreiningartækjum og bæta stafræna þjónustu. Ríkið tryggi rekstrargrundvöll heilbrigðisstofnana úti á landi á sama tíma og bæta þarf tengingu og samstarf milli LSH og annarra heilbrigðisstofnana um land allt.
Jafna þarf aðstöðu einstaklinga sem búa úti á landi með kostnaðarþátttöku í ferða- og dvalarkostnaði þegar slíkt er nauðsynlegt. Tryggja þarf komu sérfræðinga á stofnanir um allt land svo draga megi úr þörf á ferðalögum fólks til Reykjavíkur. Mikilvægt er að fæðingarþjónusta sé til staðar sem næst heimabyggð vegna öryggis móður og barns. Efla þarf sjúkraflug og tryggja að slík þjónusta sé ætíð til taks í hinum dreifðu byggðum með styttri viðbragðstíma en þekkist í dag.
Málefni eldra fólks. Endurskoða þarf þjónustu við eldra fólk varðandi almennt heilsufar þar á meðal tannheilsu. Auka þarf skilvirkni heildarþjónustunnar og samþætta heimahjúkrun, félags- og tómstundaþjónustu auk sálgæslu og annars sem getur dregið úr einsemd aldraðra. Heilsugæslan þarf að nálgast eldra fólk fyrr á lífsleiðinni og miða þjónustu og úrræði við þarfir hvers og eins. Fjölga þarf þjónustuíbúðum og auka fjölbreytileika varðandi búsetuform, en einnig tryggja aðgengi að hjúkrunarheimilum þegar sjálfstæð búseta er ekki lengur möguleg. Boðið verði upp á úrræði við hæfi svo að eldra fólki verði gert kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði. Horfa þarf til nýsköpunar og nýta ber betur sjálfstætt starfandi fyrirtæki á þessu sviði og tryggja betur sjálfsákvörðunarrétt eldra fólks og fjárhagslegt sjálfstæði þess.
Aðstæður eldra fólks og öryrkja fara ekki að öllu leyti saman í almannatryggingakerfinu. Endurskoða þarf lífeyrissjóða- og almannatryggingakerfi m.t.t. hagsmuna eldra fólks. Starfslok verði sveigjanleg og fólki gert kleift að starfa í fullu starfi eða hlutastarfi miðað við áhuga og færni en ekki eingöngu miðað við aldur og tímasett starfslok. Margir hópar ljúka ekki starfsævinni með rík lífeyrisréttindi og nýta þarf skattkerfið annars vegar til að styðja við þessa hópa og auka svigrúm til atvinnuþátttöku án umtalsverðra skerðinga. Draga þarf úr skerðingu ellilífeyris vegna lífeyristekna og annarra tekna, hvaðan sem þær koma.
Málefni fólks með skerta starfsorku. Sjálfstæðisflokkurinn vill endurskoða tryggingakerfi öryrkja frá grunni og horfa til þess að öryrkjar hafi ávinning af því að afla sér tekna. Þeim verði auðvelduð þátttaka á almennum vinnumarkaði með tilliti til starfsgetu án þess að þeir verði fyrir umtalsverðri skerðingu á örorkulífeyri. Afnema þarf krónu á móti krónu skerðingu og hækka viðmiðið til að tryggja lágmarkstekjur og auka hvata til sjálfsbjargar.
Endurskoða þarf starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins (TR) með ofangreint í huga og hægt sé að gera samninga við öryrkja sem gefi þeim hvata til vinnu sem tekur mið af starfsgetu hvers og eins Hið opinbera, ríki og sveitarfélög, leiði slíka vinnu í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.
Málefni fatlaðs fólks á vegum sveitarfélaga. Tilflutningur málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga hefur skapað margvíslega erfiðleika m.a. í tengslum við fjármögnun þjónustunnar. Endurskoða þarf frá grunni fjármögnun sveitarfélaga/þjónustusvæða á þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Finna þarf leiðir til þess að sveitarfélög/þjónustusvæði geti sinnt þjónustu sinni eins og lög kveða á um. Mikilvægt er að endurskoða í því samhengi framlög til málaflokksins þar sem þau standa ekki undir þjónustuþörf.
Auka ber sjálfstæði fatlaðra einstaklinga og þau sem búa við mikla skerðingu þannig að þau hafi val um að stýra sinni þjónustu sjálf m.a. með notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA).
Endurhæfing. Leggja ber áherslu á endurhæfingu og fjölga endurhæfingarúrræðum fyrir þau sem eru með skerta starfsorku vegna sjúkdóma eða slysa. Öll sem verða fyrir skerðingu á starfsgetu fái tækifæri til starfsendurhæfingar þegar læknisfræðilegri meðferð og endurhæfingu er lokið.
Leitast þarf við að bjóða upp á fjölbreytt úrræði í heimabyggð, en um leið þarf að þróa úrræði þvert á sveitarfélög til að gæta jafnræðis í þjónustu og stuðla að hagkvæmni. Tryggja þarf að þau sem ekki fá endurhæfingu á opinberri stofnun, geti sótt þá þjónustu á almennum markaði með greiðsluframlagi frá ríkinu þegar slíkt á við.
Geðheilbrigðismál. Leggja ber meiri áherslu á forvarnir í geðheilbrigðismálum og snemmtæka íhlutun og efla þarf fyrsta stigs þjónustu heilsugæslunnar á þessu sviði. Um helmingur þeirra sem fara á örorku fyrir 35 ára aldur eru með geðsjúkdóm sem meginástæðu. Huga þarf sérstaklega að málefnum barna og unglinga og þau hafi greiðan aðgang að félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum og sálfræðingum í grunnskólum. Endurskoða þarf húsnæðismál geðdeildar LSH og undirbúa nýja byggingu þar sem staðarval og allt umhverfi og aðstaða henti betur skjólstæðingum, aðstandendum þeirra sem og starfsfólki.
Líta þarf á fíkn sem heilbrigðisvanda en ekki löggæsluvanda. Tryggja þarf meðferð og endurhæfingu fíknisjúklinga og auðvelda þeim endurkomu í samfélagið.
Húsnæðismál. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á séreignarstefnu í húsnæðismálum um leið og stuðla þarf að hagkvæmum úrræðum á leigumarkaði.
Miklu máli skiptir að aðgerðir hins opinbera á sviði húsnæðismála stuðli að nægu framboði húsnæðis svo sem með auknu framboði byggingalóða. Auðvelda þarf ungu fólki að eignast eigið íbúðarhúsnæði en einnig stuðla að því að myndast geti virkur leigumarkaður eins og þekkist víða í nágrannalöndum. Þannig verður til valkostur og valfrelsi enda vill Sjálfstæðisflokkurinn tryggja frelsi einstaklingsins til að ákveða ráðstöfun sinna fjármuna.
Nýsköpun og nýjungar í velferðarþjónustu. Styðja þarf vel við fjárfestingar vegna nýsköpunar í velferðarþjónustu og nýtingu heilbrigðistækni og stafrænna lausna. Slíkt eykur hagkvæmni og bætir þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Opinberir aðilar þurfa að fjárfesta á þessu sviði ekki síður en í húsnæði og til almennra tækjakaupa.
Útflutningstekjur af heilbrigðis- og líftækni. Margvísleg tækifæri eru í auknum útflutningstekjum af þekkingu og sérstöðu Íslands á sviði heilbrigðis- og líftæknivísinda. Á Íslandi eru starfandi nokkur öflug heilbrigðis- og líftæknifyrirtæki í fremstu röð á sínu sviði í heiminum auk þess sem heilbrigðiskerfiskerfið býr yfir vel menntuðu starfsfólki með víðtæka þekkingu.
Með samstarfi heilbrigðisstofnana og hugvitsdrifinna fyrirtækja á sviði heilbrigðis- og líftækni má byggja upp nýja atvinnustarfsemi þar sem hugvit, nýsköpun og vel menntað starfsfólk eykur hagvöxt og útflutningstekjur og stuðlar samhliða að aukinni hagkvæmni og skilvirkni heilbrigðiskerfisins hér á landi.
Samantekt og framtíðarsýn
Sjálfstæðisflokkurinn vill móta nýja velferðar- og heilbrigðisstefnu á breiðum grunni með það markmið að heilbrigðis-og velferðarkerfið á Íslandi verði í fremstu röð. Til þess að svo verði þarf að nýta bæði tækifæri í opinberum rekstri og einkarekstri með framtíðarsýn sem tekur til menntunar heilbrigðisstarfsfólks, tækniþróunar og þarfa sjúklinga. Efla sérstaklega forvarnir, endurhæfingu og geðheilbrigðisþjónustu.
Endurskoða þarf lífeyris- og almannatryggingakerfið m.t.t. hagsmuna eldra fólks og öryrkja. Aðstæður eldra fólks og öryrkja fara ekki alltaf saman og því þarf að skoða breytingar á greiðslum til þessa hópa sérstaklega. Koma þarf til móts við þá sem búa við kröpp kjör og skapa svigrúm til atvinnuþátttöku eldra fólks og öryrkja hvort heldur í hlutastarfi eða fullu starfi án verulegrar skerðingar. Einnig þarf að tryggja sveigjanleg starfslok.
Nýta þarf einkaframtakið mun betur á sviði heilbrigðisþjónustu og fjárfestinga. Sjúkratryggingar Íslands verða að rækja betur sitt hlutverk og sjúklingar og heilbrigðisstarfsfólk þarf að hafa fleiri en einn valkost þegar kemur að sjúkrahússtarfsemi og almennri heilbrigðisþjónustu. Ganga þarf frá samningum við rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu til lengri tíma svo tryggja megi fyrirsjáanleika.
Tryggja þarf öllum landsmönnum aðgengi að heilbrigðis- og velferðarþjónustu eins og best verður á kosið. Þróa þarf tækni og tækifæri til að nýta rafrænar/stafrænar lausnir. Samningar þurfa að liggja fyrir um kaup á þjónustu við sjúkrastofnanir og sérfræðinga á sviði heilbrigðis- og velferðarþjónustu fyrir alla landsmenn og jafnræði skal ríkja á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins.
Nýsköpun í velferðar- og heilbrigðisþjónustu mun stuðla að aukinni hagkvæmni og gæðum í rekstri og tækifærum til aukinna útflutningstekna. Við menntun heilbrigðisstarfsfólks, vísindarannsóknir og fjárfestingu er þörf á fjölbreyttum rekstrarformum og fleiri atvinnutækifærum, m.a. til að auka áhuga ungs fólks í greininni. Virkjun bæði einkaframtaks og ríkisreksturs á sviði nýsköpunar, fjárfestinga og reksturs í heilbrigðis-, velferðarþjónustu mun stuðla að auknum útflutningstekjum og hagvexti.
Ályktun velferðarnefndar samþykkt á 44. landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2022.