Kæri vinur, ég óska eftir þínu atkvæði til þess að sitja í kjörnefnd vegna komandi sveitastjórnakosninga. Ég var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á árunum 2018 - 2022 og þekki því vel til starfa borgarfulltrúa. Ef þið viljið kynna ykkur fyrir hvað ég stend þegar kemur að Sjálfstæðisstefnunni og borgarmálum þá mæli ég með Valgerdur.is. Þar finni þið safn greina ásamt öðrum spennandi upplýsingum um mig.
Eins hef ég verið dugleg að sinna öðrum störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, bæði í hverfinu mínu Grafarvogi, á Hornafirði og í Valhöll. Vissulega á ég mér þó líf fyrir utan flokksstarfið og markar þetta ár stór tímamót enda að fylla fimm tugi. Ég er menntaður Mannfræðingur frá Háskóla Íslands en hef valið að vinna innan upplýsingatækni geirans og er hér hægt að forvitnast nánar um það Linkedin. Ég er gift, á þrjú börn og hund sem ég mæli með að skoða Beta ef ykkur vantar eitthvað fallegt og jákvætt í ykkar dag. Þarf svo að koma því að áður en ég hætti þessum sjálfhverfu skrifum að ég er margfaldur Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum öldunga og blákalt mat er að bara fyrir þau afrek ætti ég nú skilið þitt atkvæði.
Áfram XD
