Ég lýsi hér með yfir framboði til oddvitasætis Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Ég býð fram krafta mína, reynslu og skýra framtíðarsýn fyrir bæinn okkar. Markmið mitt er að leiða öflugt teymi innan Sjálfstæðisflokksins sem vinnur af heiðarleika, gagnsæi og ábyrgð, með skýra áherslu á þjónustu við íbúa.
Ég fæddist í Neskaupsstað árið 1975 en fluttist til Reykjanesbæjar 12 ára gamall. Ég er menntaður rafvirki, lögreglumaður og er með B.A. í guð- og miðaldafræði. Tók kennsluréttindin árið 2008 og svo master í mannauðstjórnun árið 2023. Ég hef mikið starfað innan menntageirans, bæði sem kennari og stjórnandi í Reykjanesbæ. Ég hef unnið að hinum ýmsu verkefnum í íþróttamálum bæjarins, sem knattspyrnuþjálfari og í stjórnarsetu. Ég sat í stjórn Knattspyrnusamband Íslands á árunum 2020-2024, á krefjandi tímum. Ég er giftur Jónu Birnu Ragnarsdóttur og eigum við þrjú börn.
Ég hef víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum og stefnumótun, bæði úr atvinnulífi og félagastarfi. Ég hef reynslu í að byggja brú milli ólíkra hagsmuna, hrinda verkefnum í framkvæmd og fylgja þeim eftir til árangurs, líkt og við störf sem skólastjórnandi bæði í Holtaskóla og Háaleitisskóla hafa sýnt. Ég hlusta á raddir allra íbúa og í framhaldi tek upplýstar ákvarðanir. Liðsheild, jafnrétti og ástríða fyrir bæjarfélaginu okkar eru mér leiðarljós, ég trúi á skýra ábyrgð, samvinnu og opið samtal um hvernig samfélag við viljum skapa.
