Frambjóðandi : Þröstur Sigurðsson.
Aldur : 58 ára.
Hjúskaparstaða : Giftur, maki Hrafnhildur Andrésdóttir og eigum við 2 dætur og eitt barnabarn.
Undirritaður hefur m.a. setið í Skipulags- og umferðarnefnd sveitarfélagsins og verið varafulltrúi í sveitarstjórn á því kjörtímabili sem tekur enda nú á vordögum, reynslumikill að mörgu leyti og þekki vel til í sveitarfélaginu.
Uppbygging skólamannvirkja á Hellu eru í fullum gangi. Áfangi II við Grunnskólann er á lokametrum og byrjað er á undirstöðum nýja leikskólans, lokapunktinum á þessari framkvæmdahrinu. Ekki má gleyma tilfærslu á knattspyrnuvellinum og tilurð nýs gervigrasvallar. Þessi uppbygging var plönuð á síðasta kjörtímabili (2018-2022) og hefur því mótað núverandi kjörtímabil, alla stjórnsýslu og fjárhag. Búast má við að framkvæmdir þessar og uppbygging muni sömuleiðis móta lungann úr næsta kjörtímabili hvað varðar rekstur og fjárhag sveitarfélagsins. Það eru þó víða verkefni sem bíða og nú sem fyrr verður brýnt að gæta að fjárhag sveitarfélagsins, skuldastöðu og almennum rekstri. Það er því brýnt að vanda vel til verka hvað varðar umsýslu og rekstur nú sem fyrr.
Mikil uppbygging er í sveitarfélaginu almennt, hér í þéttbýlinu á Hellu, til sveita og upp á hálendi. Framkvæmdir við öflun raforku eru loks hafnar og munu vonandi á næstu misserum fara í fullan gang. Þær framkvæmdir munu skipta miklu máli fyrir framtíð Rangárþings ytra. Einstaklingar og fyrirtæki eru að hefja uppbyggingu nýrra fyrirtækja og stækkun þeirra sem fyrir eru. Fjölgun atvinnutækifæra og framtíðin er því björt.
Innviðir eru góðir, samgöngur batna þó hægt gangi, frjór jarðvegur er fyrir hendi. Tækifærin eru mörg, starfssemi ferðaþjónustunnar hér á svæðinu er öflug og matvælaframleiðslan ekki síður. Við höfum aðgang að auðlindum, rafmagni og vatni, köldu og heitu. Við þurfum t.d. að nýta betur raforkuna sem flæðir hér um, nú er lag til að berjast fyrir því. Við þurfum að beita okkur fyrir meiri fjölbreytni í störfum og nota öll tækifæri til að minna á hvað okkar sveitarfélag hefur upp á að bjóða.
Legg áherslu á vandaða stjórnsýslu og gott aðgengi að upplýsingum. Að menn vinni saman að hagsmunum sveitarfélagsins og íbúa þess. Gætum að fjárhag sveitarfélagsins, veljum vel þau verkefni sem leggja þarf fjármuni til og förum vel með fé sveitarfélagsins, það er jú okkar allra.
Mun gera mitt ýtrasta til þess að vinna okkar sveitarfélagi gagn.
Undirritaður stefnir á 3-4 sæti í komandi prófkjöri.
Þröstur Sigurðsson
